Hoppa yfir valmynd

Frétt

15. janúar 2021 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Drög að breytingu á lögum vegna innleiðingar hringrásarhagkerfis ​

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um meðhöndlun úrgangs og lögum um úrvinnslugjald sem sett hafa verið til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda. Með frumvarpinu eru innleiddar Evróputilskipanir sem ætlað er að skapa skilyrði fyrir myndun hringrásarhagkerfis í því skyni að ýta undir bætta endurvinnslu úrgangs og draga úr myndun hans.

Með frumvarpinu er komið á skyldu til flokkunar og söfnunar fleiri úrgangstegunda en í núgildandi lögum og gert skylt að samræma flokkunarmerkingar á landsvísu. Jafnframt er lagt til að skylt verði að flokka byggingar- og niðurrifsúrgang á upprunastað.

Í frumvarpinu er áréttuð sú skylda að sveitarfélög og fyrirtæki sem safna flokkuðum úrgangi komi honum sannanlega til endurvinnslu. Þá eru lagðar til breytingar sem varða heimildir sveitarfélaga til innheimtu gjalds fyrir meðhöndlun úrgangs.

Að lokum eru lagðar til ýmsar breytingar varðandi framleiðendaábyrgð á tilteknum vöruflokkum. Lagt er til að ákveðnar lágmarkskröfur gildi um framleiðendaábyrgð, auk þess að hún gildi um plastvörur, veiðarfæri úr plasti og gler-, málm- og viðarumbúðir.

Umsögnum um frumvarpsdrögin skal skilað í Samráðsgátt Stjórnarráðsins eigi síðar en 29. janúar næstkomandi.

Drög að breytingu á lögum vegna innleiðingar hringrásarhagkerfis

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum