Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. febrúar 2021 Heilbrigðisráðuneytið

Til umsagnar: Landsráð um mönnun og menntun

  - myndStjórnarráðið

Vakin er athygli á drögum að tillögu heilbrigðisráðherra til þingsályktunar um landsráð um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu sem birt hefur verið til umsagnar í samráðsgátt. Umsagnarfrestur er til 9. febrúar næstkomandi.

Með þingsályktunartillögunni leggur heilbrigðisráðherra til að sett verði á stofn þverfaglegt landsráð um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu. Landsráðinu er ætlað að vera ráðgefandi starfseining sem vinnur að undirbúningi ákvarðana fyrir heilbrigðisráðherra á sviði mönnunar og menntunar í heilbrigðisþjónustu. Með þessu fyrirkomulagi er ætlunin að tryggja að nægur fjöldi hæfs starfsfólks verði innan heilbrigðisþjónustunnar til framtíðar og að menntun fullnægi þörfum hverju sinni. Þá skulu koma að landsráðinu aðilar úr heilbrigðisþjónustunni, menntasamfélaginu og vísindasamfélaginu með það að markmiði að tryggja viðeigandi færni, þekkingu og þróun innan heilbrigðisþjónustunnar hverju sinni. Landsráðinu er einnig ætlað að vera samráðsvettvangur um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu og að hafa virkt samráð við aðila tengda heilbrigðisþjónustu, þ.e. sjúklinga, sjúklingasamtök, fagfélög og aðra hagsmunaaðila. Brýnt er að við stefnumótun og vinnu við aðgerðir tengdar mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu að hagsmunaaðilar fái tækifæri til að taka þátt í þeirri vinnu þannig að sem mest sátt ríki innan heilbrigðisþjónustunnar um bæði kröfur til fagþekkingar hinna ýmsu heilbrigðisstétta sem og um með hvaða hætti best er að tryggja fullnægjandi mönnun á hverjum tíma.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum