Hoppa yfir valmynd

Frétt

4. febrúar 2021 Heilbrigðisráðuneytið

Umsækjendur um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu sjúkrahúsa og sérþjónustu

  - myndHaraldur Jónasson / Hari

Alls bárust 13 umsóknir um embætti skrifstofustjóra skrifstofu sjúkrahúsa og sérþjónustu í heilbrigðisráðuneytinu en umsóknarfrestur rann út 1. febrúar síðastliðinn. Þriggja manna hæfnisnefnd sem starfar samkvæmt reglum um ráðgefandi nefndir sem meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráðið, mun nú meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð með niðurstöðum sínum til heilbrigðisráðherra. Eftirfarandi eru nöfn þeirra sem sóttu um embættið:

  • Armand Krivoj, rafverktaki
  • Arna Þórdís Árnadóttir, fulltrúi
  • Bryndís Þorvaldsdóttir, sérfræðingur
  • Guðlaug Einarsdóttir, sérfræðingur
  • Guðný Birna Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi og kennari
  • Helga Harðardóttir, sérfræðingur
  • Ingunn Björnsdóttir, dósent og námsvistunarstjóri
  • Jóhann Kristjánsson, ráðgjafi
  • Kristín Dröfn Halldórsdóttir, verkefnastjóri
  • Kristín Helga B. Birgisdóttir, verkefnastjóri
  • Lilja Rós Kristínardóttir, liðveisla
  • Pranab Saikia Haloi, verkefnastjóri
  • Unnur Guðný Gunnarsdóttir, sérfræðingur

Formaður hæfnisnefndarinnar sem metur hæfni umsækjenda er Guðríður Þorsteinsdóttir lögfræðingur og fyrrverandi skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu. Aðrir nefndarmenn eru Bjarni Smári Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri og Kristín Helgadóttir, mannauðsstjóri heilbrigðisráðuneytisins.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum