Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. febrúar 2021 Heilbrigðisráðuneytið

Ráðherra staðfestir reglugerð um stofnun og rekstur neyslurýma

Heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerð um stofnun og rekstur neyslurýma. Reglugerðin er sett með ákvæði til bráðabirgða sem gerir verkefninu Frú Ragnheiði, sem Rauði krossinn í Reykjavík rekur, kleift að nýta annan af tveimur bílum Frú Ragnheiðar tímabundið sem neyslurými þar til varanlegt rými samkvæmt ákvæðum reglugerðarinnar hefur verið opnað.

Heimild til reksturs neyslurýma var leidd í lög með breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni sem samþykkt var á Alþingi á liðnu ári en þau skulu rekin með skaðaminnkun að leiðarljósi. Markmið reglugerðarinnar er að setja ramma um rekstur þeirra og starfsemi en samkvæmt skilgreiningu er neyslurými; „lagalega verndað umhverfi þar sem neytendur sem eru 18 ára og eldri geta sprautað ávana- og fíkniefnum í æð undir eftirliti starfsfólks og gætt er fyllsta hreinlætis, öryggis og sýkingavarna.“

Rekstur neyslurýma verður á hendi sveitarfélaga. Forsenda fyrir rekstrinum er að embætti landlæknis hafi veitt hlutaðeigandi sveitarfélagi leyfi til að stofna og reka slíkt rými að fenginni umsókn. Í reglugerð heilbrigðisráðherra er kveðið á um þau skilyrði sem húsnæði neyslurýmis og rekstur þess þarf að uppfylla, auk tilvísana í lög og reglugerðir sem einnig varða slíkan rekstur.

Samkvæmt reglugerðinni skal sveitarfélag sem rekur neyslurými veita embætti landlæknis upplýsingar um reksturinn með ársskýrslu, s.s. um staðsetningu þess, umfang þjónustunnar, fjölda, aldur, kyn og búsetu skráðra notenda, fjölda skipta sem lyf við ofskömmtun á ávana- og fíkniefnum hefur verið notað og fleiri atriði sem tilgreind eru í reglugerðinni.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum