Hoppa yfir valmynd

Frétt

22. febrúar 2021 Heilbrigðisráðuneytið

Ný reglugerð um notkun leysa, leysibenda og IPL-tækja

Heilbrigðisráðherra hefur sett nýja reglugerð sem kveður á um innflutning og notkun leysa, leysibenda og IPL-tækja. Með reglugerðinni eru settar skýrar kröfur um menntun þeirra sem heimilt er að nota þessi tæki, meðal annars vegna meðferða í fegrunarskyni. Enn fremur er skýrt kveðið á um aðkomu og ábyrgð læknis, hvort sem um er að ræða læknisfræðilega notkun þessara tækja eða notkun þeirra í fegrunarskyni.

Nýja reglugerðin leysir af hólmi eldri reglugerð um sama efni nr. 1339/2015. Ákveðið var að ráðast í heildarendurskoðun hennar með það að meginmarkmiði að draga úr líkum á að einstaklingar sem sækja sér meðferð í fegrunarskyni þar sem notaðir eru öflugir leysar, öflugir leysibendar og IPL-tæki verði fyrir skaða.

Geislavörnum og embætti landlæknis hafa borist ábendingar og kvartanir er lúta að rangri greiningu og meðhöndlun húðbreytinga án aðkomu læknis með viðeigandi sérmenntun. Dæmi eru um að húðbreytingar sem geta tengst alvarlegum sjúkdómum séu meðhöndlaðar í fegrunarskyni af aðilum sem ekki hafa til þess viðeigandi þekkingu og þjálfun. Einnig hafa Geislavörnum og embætti landlæknis borist kvartanir vegna alvarlegra bruna á húð við fjarlægingu húðflúrs með öflugum leysum.

Til að tryggja fullnægjandi greiningu á húðbreytingum er í nýju reglugerðinni kveðið á um að notkun öflugra leysa, öflugra leysibenda og IPL-tækja í fegrunarskyni skuli vera á ábyrgð læknis með viðeigandi sérmenntun. Hann skal starfa á þeim stað þar sem notkunin fer fram, koma með beinum hætti að greiningu þess sem á að meðhöndla og hafa möguleika á að grípa án tafar til viðeigandi viðbragða við óhöppum eða fylgikvillum.

Reglugerðin hefur verið birt í Stjórnartíðindum og hefur þegar tekið gildi.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum