Hoppa yfir valmynd

Frétt

3. mars 2021 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Yfir hundrað milljónum króna úthlutað í styrki til fjölbreyttra umhverfisverkefna

Árlega veitir umhverfis- og auðlindaráðuneytið styrki til umhverfisverkefna og reksturs félagasamtaka sem starfa að umhverfismálum á grundvelli umsókna.

Í ár hlutu 42 verkefni verkefnastyrk og nemur heildarupphæð styrkjanna tæplega 52,5 milljónum króna. Þar af eru þrír styrkir veittir til 2ja ára. Að auki koma til greiðslu á árinu 12,5 milljónir króna vegna verkefna sem veitt voru til 2-3 ára á árinu 2020.

Þá hefur ráðuneytið úthlutað 49 milljónum króna í rekstrarstyrki til 25 frjálsra félagasamtaka.

Fjölbreytt verkefni styrkt

Alls bárust ráðuneytinu 57 umsóknir um verkefnastyrki og var heildarupphæð umsókna 136,7 milljónir króna, þar af tæplega 115 milljónir fyrir árið 2021. Verkefnin sem hljóta styrki að þessu sinni ná yfir fjölbreytt svið loftslagsverkefna, hringrásarhagkerfis, náttúruverndar, landupplýsinga, veiðistjórnunar, skógræktar og plastmengunar svo dæmi séu tekin.

Meðal þeirra verkefna sem nú hljóta styrki eru nýting seyru frá fjallaskálum til uppgræðslu og nýting glatvarma til matvælaframleiðslu. Eins voru veittir styrkir vegna vitundarvakningar um hringrásarhagkerfið,  fatasóun og baráttuna gegn plastmengun, sem og verkefni sem snúa að fuglalífi, votlendi, landgræðslu og landbótum. Þá má einnig nefna náttúrukort, kvikmyndasýningu, stafræna kortlagningu skógræktar, sem og ráðstefnur, málþing og fundi um ólík umhverfismál, sem og umhverfisfræðslu í ýmsu formi.

Markhóparnir sem verkefnin ná til eru allt frá eldri borgurum til ungmenna og allt þar á milli.

„Frjáls félagasamtök og einstaklingar inna af hendi afskaplega mikilvægt starf í umhverfismálum og náttúruvernd“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra. „Það er gríðarlega mikilvægt að geta stutt við verkefni innan þessara geira, sem ella myndu ef til vill ekki ná fram að ganga. Við höfum aukið umtalsvert við styrkfjárhæðina undanfarin ár. Bæði í ár og í fyrra lögðum við sérstaka áherslu á að styrkja verkefni sem tengjast loftslagsmálum og hringrásarhagkerfi, en hvort tveggja hefur verið áherslumál hjá mér í minni ráðherratíð.“

Eftirtalin verkefni hlutu styrk að þessu sinni:

Nafn umsækjanda

Heiti verkefnis

Upphæð

Ár

Andri Már Þórhallsson

Plöntum: Aukin þátttaka almennings í fjármögnun skógræktar.

3.000.000

Austurbrú ses

Vitundarvakning um hringrásarhagkerfið á Austurlandi

1.900.000

Blái herinn

Plasthreinasta landhelgi í heimi( Úr viðjum plastsins)

2.000.000

Eldvötn

Afmælismálþing í tilefni áratugar starfsafmælis Eldvatna

500.000

Ferðafélag Íslands

Nýting seyru frá fjallaskálum til uppgræðslu

3.300.000

2

Ferðaklúbburinn 4x4

Landbætur og aukið öryggi ferðamanna á hálendi Íslands

720.000

Fjöregg

Barátta gegn ágengum tegundum í lífríki Mývatnssveitar

800.000

Fuglaverndarfélag Íslands

Evrópufundur BirdLife International

240.000

Fuglaverndarfélag Íslands

Skipulögð skráning flækingsfugla á Íslandi

750.000

Fuglaverndarfélag Íslands

Endurheimt votlendis í Fuglafriðlandinu í Flóa

650.000

Fuglaverndarfélag Íslands

Málstofa um vindorkuver

400.000

Fuglaverndarfélag Íslands

Hlúð að lífríkinu í Hafnarhólma

436.000

Johannes Theodorus Welling

Aðlögun náttúruferðamennsku á Íslandi að áhrifum loftslagsbreytinga

1.000.000

Jöklarannsóknafélag Íslands

Bætt aðgengi að Jökli, tímariti Jöklarannsóknafélags Íslands

1.550.000

Kvenfélagasamband Íslands

Vitundarvakning um fatasóun

1.700.000

Landvernd

Hálendið er land þitt.

2.000.000

Landvernd

Nýja náttúrukortið

900.000

Landvernd

Græni kraginn

1.500.000

Landssamband eldri borgara

Umbúðalausir eldri borgarar

1.800.000

LÍSA

Upplýsingagátt -Aðgengi að innlendu og erlendu fræðsluefni og sögulegu efni

250.000

LÍSA

Erlent samstarf

240.000

Náttúruverndarsamtök Austurlands

Hálendi Austurlands

500.000

Náttúruverndarsamtök Íslands

Samningafundur Sþ. um verndun og nýtingu líffræðilegs fjölbreytileika sjávar

890.000

Náttúruverndarsamtök Íslands

Orkuskipti, skipulag og almenningssamgöngur

750.000

Náttúruverndarsamtök Íslands

Ferð vegna 26. þings aðildarríkja Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna

770.000

Náttúruverndarsamtök Suð-vesturlands

Vatnsból og vatnverndarsvæði höfuðborgarsvæðisins

200.000

Óli-Film ehf.

Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur - mynd

2.200.000

2

Pétur Þór Jónasson

Ráðstefnan Maturinn, jörðin og við

200.000

Plastlaus september

Plastlaus september

4.000.000

Samtök Sveitarfélaga á Norðurlandi vestra

Nýting glatvarma í hringrásarhagkerfinu í staðbundinni matvælaframleiðslu.

6.000.000

2

Samtök um náttúruvernd Norðurlands

Kvikmyndasýning á Akureyri - "Tomorrow"

300.000

Skotvís

Útfösun á plasti úr forhlöðum og skotum

350.000

Skotvís

Ársfundur FACE 2020

325.000

Skógræktarfélag Íslands

Fundur European Forest Network á Íslandi

1.100.000

Skógræktarfélag Íslands

Opin skógur - umhirða eldri reita

500.000

Skógræktarfélag Íslands

Innleiðing stafrænnar kortlagningar skógræktar

2.000.000

Skógræktarfélag Rangæinga

Útivistarskógur

500.000

Surtseyjarfélagið

Friðlandið í Surtsey: Búnaður og fræðsla

1.400.000

Ungir umhverfissinnar

Framtíðarsýn ungs fólks á hálendið

650.000

Ungmennafélagið Þristur

Náttúruskólinn

1.000.000

Veraldarvinir

Brú - miðstöð sjálfbærni fræðslu og umhverfisverndar

1.700.000

Þorvarður Árnason

Óbyggð víðerni á Íslandi: Alþýðlegt fræðirit

1.500.000

52.471.000

Tæpar 50 milljónir til reksturs félagasamtala

Þá hefur ráðherra úthlutað styrkjum til reksturs 25 félagasamtaka sem starfa á málasviði ráðuneytisins. Í ár námu styrkirnir 49 milljónum króna og er það aukning sem nemur um 10 m.kr. frá fyrra ári

Eftirtalin félagasamtök hlutu rekstrarstyrk á árinu 2021:

Samtök/félag

Styrkfjárhæð 2021

Blái herinn

600.000

Eldvötn

760.000

Fjöregg

360.000

Fuglaathugunarstöð Suðausturlands

400.000

Fuglavernd

4.320.000

Garðyrkjufélag Íslands

1.260.000

Gróður fyrir fólk

800.000

Grænni byggð

600.000

Hið íslenska náttúrufræðifélag

1.300.000

Hraunavinir

130.000

Landvernd

14.280.000

LÍSA Samtök

400.000

Náttúruverndarsamtök Austurlands

890.000

Náttúruverndarsamtök Íslands

6.660.000

Náttúruverndarsamtök Suðurlands

960.000

Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands

500.000

Samtök Útivistarfélaga

1.480.000

Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd SJÁ

140.000

Skotveiðifélag Íslands

1.320.000

Skógræktarfélag Akranes

400.000

Skógræktarfélag Íslands

7.060.000

Skógræktarfélag Kópavogs

400.000

SUNN - Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi

800.000

Ungir umhverfissinnar

2.580.000

Veraldarvinir

600.000

49.000.000

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum