Hoppa yfir valmynd

Frétt

17. mars 2021 Forsætisráðuneytið

Alþjóðaráðstefna um lýðræði og stafræna tækni

Forsætisráðuneytið, í samvinnu við Rannsóknarsetrið EDDU við Háskóla Íslands, Alþingi og fjölmiðlanefnd, stendur fyrir alþjóðlegu ráðstefnunni Democracy in a Digital Future dagana 25. og 26. mars nk.

Á ráðstefnunni koma saman innlendir og erlendir fræðimenn á sviði stjórnmálafræði, heimspeki, lögfræði og tæknifræða ásamt stjórnmálamönnum og sérfræðingum til að fjalla um þær áskoranir sem lýðræðið stendur frammi fyrir á 21. öldinni. Þeirra á meðal eru Shoshana Zuboff, prófessor í stjórnun við viðskiptadeild Harvard-háskóla, og David Runciman, prófessor í stjórnmálafræði við Cambridge-háskóla.

Meðal umfjöllunarefna á ráðstefnunni eru áhrif nýjunga á sviði stafrænnar tækni á lýðræði, jafnrétti og einstaklingsbundin réttindi og hlutverk stjórnvalda við að tryggja að tækniþróun taki mið af lýðræðislegum gildum. Þá verður sjónum beint að vexti samfélagsmiðla, útbreiðslu falsfrétta og hnignun hefðbundinnar fjölmiðlunar. Ráðstefnan, sem mun að mestu leyti fara fram á ensku, fer fram rafrænt og í Hörpu eftir því sem aðstæður leyfa. Aðgangur er öllum opinn en hægt er að skrá þátttöku sína á heimasíðu ráðstefnunnar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum