Hoppa yfir valmynd

Frétt

19. mars 2021 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Sigurður Ingi undirritaði samevrópska ráðherrayfirlýsingu um gagnaflutninga

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. - mynd

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur undirritað samevrópska ráðherrayfirlýsingu um mikilvægi öflugra gagnatenginga innan Evrópu og til annarra heimsálfa (e. The European Data Gateways Declaration) fyrir fjölbreytta stafræna þróun í Evrópu. Yfirlýsingin var undirrituð í dag á fundi framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og EES-þjóðanna um stafræna þróun (e. Digital Day).

Markmiðið með yfirlýsingunni er setja fram þá framtíðarsýn að Evrópa verði leiðandi í gagnatengingum hvort tveggja innan álfunnar og til annarra heimsálfa sem uppfylli ströngustu kröfur um öryggi net- og upplýsingakerfa.

„Ísland er í röð fremstu ríkja heims í fjarskiptainnviðum samkvæmt mati Alþjóðafjarskiptastofnunarinnar. Við eigum góð fjarskiptanet og höfum sett skýran lagaramma um öryggi net- og upplýsingakerfa. Alþjóðlegt samstarf um að efla fjarskiptaþjónustu er nauðsynlegt og við viljum taka virkan þátt í að móta framtíðina í þessum efnum í Evrópu með samstarfsþjóðum okkar í EES-samstarfinu. Íslensk stjórnvöld hafa unnið markvisst að undirbúningi þriðja fjarskipta-sæstrengsins til Evrópu á undanförnum misserum, sem er í anda þessarar yfirlýsingar og stefnu fyrir alla Evrópu,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Í yfirlýsingunni er fjallað um ýmsar hliðar fjarskiptaþjónustu og -öryggis. Þar er meðal annars fjallað um mögulega aðkomu sjóða að uppbyggingu á tengingum á svæðum þar sem markaðslegar forsendur eru ekki fyrir hendi. Ísland ljóstengt er gott dæmi um slíkt uppbyggingarverkefni og hefur það verið kynnt á samevrópskum vettvangi síðustu misseri. 

Þá er fjallað um að huga þurfi að því að styrkja öruggar samskiptaleiðir í Evrópu sem fara um gervihnetti (e. space-based connectivity). Loks er fjallað um að fjarskipta-sæstrengir verði mögulega skilgreindir sem mikilvægir innviðir með tilheyrandi kröfum og upplýsingagjöf.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum