Hoppa yfir valmynd

Frétt

25. mars 2021 Heilbrigðisráðuneytið

COVID-19: Heimild fyrir 100 viðskiptavinum í lyfja- og matvöruverslunum

Heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð um breytingu á reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar, sem veitir lyfja- og matvöruverslunum heimild til að taka á móti að hámarki 100 viðskiptavinum að uppfylltum öðrum skilyrðum reglugerðarinnar, í stað 50 áður. Óbreyttar reglur gilda í öðrum verslunum. 

Í verslunum gildir eftirfarandi regla við gildistöku breytingareglugerðarinnar: Þrátt fyrir ákvæði um 10 manna fjöldatakmörkun er verslunum heimilt að taka við fimm viðskiptavinum á hverja 10 m², þó að hámarki 50 viðskiptavini í rými, en 100 viðskiptavini í lyfja- og matvöruverslunum. Þá er heimilt að hafa allt að 20 starfsmenn í sama rými og viðskiptavinir að því gefnu að uppfyllt sé það skilyrði að tryggja megi að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.

Reglugerðin hefur þegar tekið gildi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum