Hoppa yfir valmynd

Frétt

30. mars 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Frumvarp um breytingar á barnaverndarlögum samþykkt í ríkisstjórn

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, kynnti frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum á fundi ríkisstjórnarinnar í dag og var það samþykkt. Frumvarpið er liður í endurskoðun laga um þjónustu í þágu barna. Um er að ræða fyrri hluta heildarendurskoðunar barnaverndarlaga.

Ráðherra hefur haft víðtækt samráð við almenning og hagsmunaaðila um efni frumvarpsins frá því að áform um heildarendurskoðun barnaverndarlaga voru kynnt í október 2019. Við undirbúning frumvarpsins var meðal annars haft samráð við börn, en í frumvarpinu eru meðal annars ákvæði sem miða að því að styrkja réttindi barna við meðferð barnaverndarmála. Fimmtán umsagnir bárust um drög að frumvarpinu sem ráðherra kynnti í samráðsgátt stjórnvalda í febrúar og hefur verið brugðist við þeim umsögnum í frumvarpinu sem kynnt var fyrir ríkisstjórn í dag. Í meirihluta umsagnanna var ánægju lýst með frumvarpsdrögin í heild og/eða einstök ákvæði þeirra.

Í frumvarpinu felst meðal annars að pólitískt skipaðar barnaverndarnefndir verða lagðar niður. Í stað barnaverndarnefndar verður starfrækt barnaverndarþjónusta og umdæmisráð barnaverndar á vegum sveitarfélaga. Sérstök áhersla er lögð á fagþekkingu innan umdæmisráða barnaverndar. Þá er lagt til að barnaverndarumdæmi séu almennt ekki fámennari en 6.000 íbúar. Sveitarfélög geti þó fengið undanþágu frá reglum um lágmarksíbúafjölda ef þau sýna fram á lágmarks fagþekkingu á barnavernd.

Frumvarpinu er jafnframt ætlað að gefa færi á samþættingu barnaverndarþjónustu við aðra þjónustu sem er veitt í þágu barna. Tengjast ákvæði frumvarpsins að því leyti frumvörpum sem Ásmundur Einar Daðason mælti fyrir á Alþingi í lok síðasta árs um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra: „Ég er gríðarlega ánægður með að ríkisstjórnin hafi samþykkt þetta frumvarp um breytingu á barnaverndarlögum, en um er að ræða eina mestu breytingu á kerfinu sem ráðist hefur verið í síðustu áratugi. Markmið okkar í þessari vinnu er að barnið verði hjartað í kerfinu og að kerfið vinni fyrir þau. Þessar breytingar eru hluti af miklum breytingum á kerfinu, verkefnið er mjög umfangsmikið og ég er virkilega spenntur fyrir að koma þessum breytingum í gegn. Við erum rétt að byrja.”

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum