Hoppa yfir valmynd

Frétt

31. mars 2021 Heilbrigðisráðuneytið

COVID-19: Spánn tekinn af lista yfir lönd sem skilgreind eru sem áhættusvæði

Heilbrigðisráðuneytið hefur ákveðið að fjarlægja meginland Spánar af landalista sóttvarnalæknis þar sem tilgreint er hvaða lönd eru skilgreind áhættusvæði vegna mikils nýgengis COVID-19 smita. Þetta er gert í ljósi þess mats ráðuneytisins að skilgreiningin samræmist ekki gildandi reglugerð heilbrigðisráðherra um sóttkví, einangrun og sýnatöku á landamærum Íslands vegna COVID-19 þótt gögn skorti um smitstöðu í einu héraði landsins. Farþegar frá meginlandi Spánar skulu sæta sóttkví í heimahúsi eftir breytinguna en ekki á sóttkvíarhóteli.

Í 1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar segir m.a.: „Sé löndum skipt upp í fleiri en eitt svæði þar sem nýgengi smita er ólíkt er heimilt að miða allt landið við það svæði þar sem nýgengi er hæst.“

Af texta ákvæðisins má ráða að einungis er heimilt að miða allt landið við eitt svæði sé það dökkrautt, en ekki ef eitt svæði er grátt, enda liggur þá ekki fyrir að þar sé nýgengi hæst. Það er því mat ráðuneytisins að ekki sé heimilt að hafa Spán á listanum. Stefnt er að því að listinn verði næst uppfærður 9. apríl.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum