Hoppa yfir valmynd

Frétt

31. mars 2021 Dómsmálaráðuneytið

Stafræn réttarvörslugátt hlaut Íslensku vefverðlaunin

Stafræn réttarvörslugátt, sem er verkefni sem er leitt af dómsmálaráðuneytinu og snýst um að útbúa stafrænan farveg fyrir örugga og hraða miðlun gagna og upplýsinga á milli aðila í réttarvörslukerfinu, hlaut Íslensku vefverðlaunin í flokki vefkerfa.

„Vefkerfi ársins er einfalt í notkun og notendavænt, en með tilkomu þess verður ferlið hraðara og öruggara í vinnslu. Kerfið styður vel við notendur, skýrleiki er í fyrirrúmi og gerir flókna umsýslu rekjanlega og sýnilega.  Mjög vel útfærð lausn," sagði í umsögn dómnefndar.

Réttarvörslugáttin mun nýtast til að einfalda allan málarekstur, t.d. vegna sakamála, rannsóknarheimilda lögreglu og einkamála. Saksóknurum, lögmönnum og öðrum aðilum mála, verður gert kleift að hefja mál og afhenda gögn rafrænt til dómstóla á Íslandi með einföldum og öruggum hætti. Með stafrænu aðgengi opnast m.a. möguleikar á að málsmeðferð geti, að minnsta kosti að hluta til, farið fram rafrænt, ásamt því að öll málsmeðferð og samskipti verða skilvirkari og öruggari.

Með stafrænum samskiptaleiðum fyrir lögreglu, dómstóla og aðrar stofnanir í réttarvörslukerfinu opnast auk þess möguleikar á mun betra aðgengi málsaðila og almennings í framtíðinni að sínum gögnum, í gegnum miðlæga þjónustugátt Island.is, en Stafrænt Ísland og hugbúnaðarhúsið Kolibrí eru samstarfsaðilar dómsmálaráðuneytisins í verkefninu. Sjá nánar um stafræna réttarvörslugátt.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum