Hoppa yfir valmynd

Frétt

13. apríl 2021 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Léttum lífið - Viðburður um opinbera þjónustu til framtíðar

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra ræðir um framtíðarsýn í opinberum umbótum á viðburðinum. - mynd

Hvernig á opinber þjónusta að vera til framtíðar? Miðvikudaginn 14. apríl stendur fjármála- og efnahagsráðuneytið fyrir opnum viðburði þar sem fjallað verður um hvernig bæta megi opinbera þjónustu og létta líf almennings á sama tíma og peningar skattgreiðenda sparast. Yfirskrift viðburðarins er Léttum lífið: Spörum sporin og aukum hagkvæmni með umbótum í opinberri þjónustu.

Þar verður m.a. fjallað um hvernig Stafrænt Ísland gjörbreytir samskiptum og upplifun af hinu opinbera. Þá verður rætt hvernig nýta má nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi í samfélaginu til að færa þjónustu nær fólki og draga úr sóun. Loks verður fjallað um hvernig við ætlum að spara milljarða með nýrri nálgun í innkaupamálum á sama tíma og við veitum góða þjónustu og gerum hana umhverfisvænni.

Stefna ríkisins um sjálfbær innkaup er með skýra framtíðarsýn um framsækin og umhverfisvæn innkaup og með fjögur meginmarkmið: sjálfbær innkaup, hagkvæm innkaup, nýskapandi innkaup og gagnsæ innkaup. Fjölbreytt nálgun í samningskröfum auk innkaupakerfis og gagnagreininga vinnur að markmiðum um aðhald í ríkisrekstri.

Viðburðinum verður streymt miðvikudaginn 14. apríl kl 10 á Facebook-síðu fjármála- og efnahagsráðuneytisins og á vef Stjórnarráðsins. Meðan á viðburðinum stendur gefst áhorfendum kostur á að tjá sínar skoðanir á því hvernig þeir vilja að opinber þjónusta verði í framtíðinni. Þau sem hafa áhuga á að fá áminningu um viðburðinn geta skráð þátttöku á vef Stjórnarráðsins eða á Facebook-síðu fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Dagskrá viðburðarins:

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra: Uppfærum stýrikerfið - opinberar umbætur og framtíðarsýn
Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands: Stafrænt Ísland: Á fleygiferð inn í framtíðina
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, framkvæmdastjóri Kara-Connect. Íbúarnir í fyrsta sæti
Björgvin Víkingsson, forstjóri Ríkiskaupa: Ávinningur fjölbreyttra innkaupa - ný innkaupastefna ríkisins

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum