Hoppa yfir valmynd

Frétt

19. apríl 2021 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Verndun tungumála heimsins: Ísland í stýrihóp UNESCO vegna áratugs frumbyggjamála

Birna Arnbjörnsdóttir forstöðumaður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur og Ásdís Rósa Magnúsdóttir, stjórnarformaður Vigdísarstofnunar. - myndHáskóli Íslands / Kristinn Ingvarsson
Tungumál sem fáir tala, líkt og íslenska, eiga undir vök að verjast. Flest tungumál heimsins eru notuð af fáum og mörg þeirra flokkast sem mál í útrýmingarhættu, hvort sem þau eru opinber mál þjóðríkja, minnihlutamál eða frumbyggjamál. Með auknu sambýli tungumála er mikil hætta á jaðarsetningu slíkra mála sem að lokum getur leitt til útrýmingar þeirra; til dæmis eru færri en eitt hundrað þeirra 6500 tungumála, sem töluð eru í heiminum, notuð á stafrænan hátt og aðeins örfá hundruð tungumála eru kennd í skólum heimsins.

Ísland hefur nú tekið sæti í stýrihópi og undirbúningsnefnd Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. UNESCO) vegna Alþjóðlegs áratugs frumbyggjamála (2022-2023) en markmið þess verkefnis er að vekja athygli á alvarlegri fækkun slíkra tungumála og brýnni þörf á að varðveita, endurlífga og efla þau og kynna jafnt á lands- og alþjóðavísu. Fulltrúi Íslands í stýrihópnum er Birna Arnbjörnsdóttir forstöðumaður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og deildarforseti Mála- og menningardeildar Háskóla Íslands.

Mikil reynsla er innan Vigdísarstofnunar af verkefnum sem lúta að fámennistungumálum og rannsóknum á þeim en stofnunin starfar undir hatti UNESCO sem alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum