Hoppa yfir valmynd

Frétt

30. apríl 2021 Matvælaráðuneytið

Niðurstaða úthlutunar á tollkvótum frá Evrópusambandinu á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið 1. maí til 15. september 2021

  - myndSebastian Holgado / Unsplash

Mánudaginn 26. apríl 2021 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópusambandinu samkvæmt reglugerð nr. 345/2021 fyrir tímabilið 1. maí til 15. september 2021. Samtals bárust 20 gild tilboð í tollkvótann.

Nautgripakjöt í vörulið 0201/0202. Tólf tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á nautgripakjöti, samtals 557.000 kg. á meðalverðinu 148 kr./kg.  Hæsta boð var 475 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tíu fyrirtækjum um innflutning á 232.000 kg. á meðalverðinu 302 kr./kg.

Svínakjöt í vörulið 0203. Tíu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á svínakjöti, samtals 924.010 kg. á meðalverðinu 65 kr./kg.  Hæsta boð var 301 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sjö fyrirtækjum um innflutning á 233.000 kg. á meðalverðinu 199 kr./kg.

Alifuglakjöt, í vörulið 0207. Ellefu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, samtals 842.011 kg á meðalverðinu 288 kr./kg.  Hæsta boð var 441 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá átta fyrirtækjum um innflutning á 285.000 kg á meðalverðinu 390 kr./kg.

Alifuglakjöt lífrænt ræktað/lausagöngu, í vörulið ex0207. Þrjú tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, lífrænt ræktað/lausagöngu, samtals 137.000 kg á meðalverðinu 116 kr./kg.  Hæsta boð var 251 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 67.000 kg á meðalverðinu 231 kr./kg.

Kjöti og ætir hlutar af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;... í vörulið 0210. Tíu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á kjöti og ætum hlutum af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;..., samtals 76.400 kg. á meðalverðinu 48 kr./kg. Hæsta boð var 332 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá níu fyrirtækjum um innflutning á 33.000 kg. á meðalverðinu 111 kr./kg.

Ostar og ystingur í vörulið 0406. Þrettán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi á vörulið 0406, samtals 367.500 kg. á meðalverðinu 306 kr./kg. Hæsta boð var 750 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tíu fyrirtækjum um innflutning á 127.000 kg. á meðalverðinu 689 kr./kg.

Ostur og ystingur úr vörulið ex0406;...(**). Þrettán umsóknir bárust um tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi úr vörulið ex 0406...(**) samtals 412.550 kg. Á grundvelli 5. gr. reglugerðar nr. 345/2021 er tollkvóta úr vörulið ex0406 úthlutað með hlutkesti og er hámark úthlutunar til hvers fyrirtækis 15% af heildarmagni tollkvótans. Samtals var úthlutað 77.000 kg., til átta fyrirtækja.

(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.

Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti.... í vörulið 1601. Fjórtán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á pylsum og þess háttar vörum úr kjöti.... úr vörulið 1601, samtals 217.300 kg. á meðalverðinu 72 kr./kg.  Hæsta boð var 379 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tólf fyrirtækjum um innflutning á 83.000 kg. á meðalverðinu 175 kr./kg.

Annað kjöt...., unnið eða varið skemmdum-... í vörulið 1602. Fimmtán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á öðru kjöti..., á vörulið 1602, samtals 364.500 kg. á meðalverðinu 177 kr./kg.  Hæsta boð var 450 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fjórtán fyrirtækjum um innflutning á 133.000 kg. á meðalverðinu 357 kr./kg.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:

 

Kjöt af nautgripum, nýtt, kælt eða fryst, 0201/0202

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

15.000

Aðföng

20.000

Ásbjörn Ólafsson ehf

100.000

Ekran ehf

6.000

Garri ehf

10.000

Innnes ehf

8.000

Kjötmarkaðurinn ehf

3.000

Krónan hf

20.000

Samkaup sf

20.000

Stjörnugrís ehf

30.000

Sælkeradreifing ehf

 

Svínakjöt, nýtt, kælt eða fryst, 0203 

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

25.000

Ásbjörn Ólafsson ehf

500

Innnes ehf

24.000

Kjarnafæði hf

4.000

Kjötmarkaðurinn ehf

5.000

Krónan hf

164.500

Mata ehf

10.000

Stjörnugrís ehf

 

Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst, 0207

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

90.000

Aðföng

95.499

Ekran ehf

2.000

Garri ehf

80.000

Innnes ehf

4.500

Kjarnafæði hf

4.000

Kjötmarkaðurinn ehf

1

Mata ehf

9.000

Sælkeradreifing ehf

 

Kjöt af alifuglum nýtt, kælt eða fryst, lífrænt ræktað/lausagöngu ex0207 

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

67.000

Ekran ehf

 

Kjöt og ætir hlutar af dýrum.. 0210 

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

8.000

Aðföng hf

400

Ásbjörn Ólafsson ehf

10.500

Ekran ehf

700

Garri ehf

2.000

Innnes ehf

3.000

Krónan ehf

1.400

Samkaup sf

5.000

Stjörnugrís ehf

2.000

Sælkeradreifing ehf

 

Ostur og ystingur 0406

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

35.000

Aðföng

2.000

Ásbjörn Ólafsson ehf

8.000

Garri ehf

7.500

Innnes ehf

11.000

Krónan hf

1.000

Market ehf

3.000

Mjólkursamsalan

52.000

Natan &Olsen

4.500

Samkaup sf

3.000

Sælkeradreifing ehf

 

Ostur og ystingur ex 0406 Úthlutun gerð á gr.v. 5. gr. reglugerðar nr. 345/2021

Úthlutað magn (kg)

Tilboðsgjafi

10.000

Aðföng

7.000

Danól ehf

11.550

Mata ehf

11.550

Mjólkursamsalan

11.550

Natan & Olsen ehf

5.800

Stjörnugrís ehf

8.000

Sælkeradreifing ehf

11.550

Vínnes ehf

 

Pylsur og þess háttar vörur 1601

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

7.000

Aðföng

300

Ásbjörn Ólafsson ehf

1.000

Danól ehf

6.000

Ekran ehf

2.000

Innnes ehf

2.000

KFC ehf

3.000

Krónan hf

15.000

Market ehf

38.200

Mini market ehf

5.500

Nautica ehf

1.000

Samkaup sf

2.000

Sælkeradreifing ehf

 

Annað kjöt, hlutar úr dýrum-.... 1602 

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

20.000

Aðföng

10.000

Ásbjörn ólafsson ehf

4.000

Danól ehf

923

Ekran ehf

4.000

Garri ehf

50.000

Innnes ehf

10.000

KFC ehf

5.000

Krónan hf

3.654

Market ehf

4.000

Mini Market ehf

1.500

Nautica ehf

5.923

Samkaup sf

1.000

Stjarnan ehf

13.000

Sælkeradreifing ehf

 

Reykjavík, 30. apríl 2021

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum