Hoppa yfir valmynd

Frétt

5. maí 2021 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Umræðuskjal um Landbúnaðarstefnu fyrir Ísland kynnt​

Kristján Þór, Hlédís og Björn kynntu Ræktum Ísland! - myndGolli

Landnýting, loftslagsmál og umhverfisvernd, nýsköpun og tækni eru þrjár lykilbreytur sem munu marka landbúnaðarstefnu fyrir Ísland til framtíðar. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, stóð í dag fyrir fjarfundi þar sem kynntvar Ræktum Ísland! umræðuskjal um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland. 

Meginþættir landbúnaðarstefnu framtíðarinnar eru að treysta fæðuöryggi, tryggja matvælaöryggi og sjálfbæra landnýtingu, auka verðmætasköpun og samkeppnishæfni á grundvelli vísinda og nýjustu tækni og stuðla að því að blómlegur landbúnaður þrífist um land allt. 

Ræktum Ísland! er umræðuskjal verkefnastjórnar um landbúnaðarstefnu, en hana skipa Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, og Hlédís H. Sveinsdóttir, ráðgjafi og verkefnastjóri. 

Með umræðuskjalinu er opnað á frekara samtal og samráð. Þar er að finna meginatriði eða tillögur í 19 efnisköflum sem lagt er til að verði lögð til grundvallar við endanlega gerð landbúnaðarstefnunnar og aðgerðaráætlunar í samræmi við hana.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:

„Eftir tæplega þriggja ára aðdraganda liggur nú fyrir Ræktum Ísland!, umræðuskjal um Landbúnaðarstefnu fyrir Ísland. Ég er afskaplega ánægður með þetta metnaðarfulla og vandaða skjal og þakka verkefnisstjórninni fyrir frábært starf. Nú tekur við víðtækt samráð um þetta skjal, meðal annars með 10 opnum fundum um allt land þar sem  hlustað verður eftir viðhorfum fólks, hugmyndum og ábendingum. Þetta víðtæka samráð mun síðan nýtast við endanlega útfærslu landbúnaðarstefnu fyrir Ísland sem ég fullyrði að er stærsta hagsmunamál íslensks landbúnaðar nú um stundir.“

Í tillögum verkefnisstjórnar er hugað að umgjörð landbúnaðarins í heild og því ekki fjallað sérstaklega um einstakar búgreinar. Núverandi búvörusamningar gilda til ársins 2026 og er tilgangur skjalsins að vísa vegin við gerð slíkra samninga í framtíðinni. 

Við gerð meginatriðanna var tekið mið af þremur lykilbreytum sem munu hafa mikil áhrif á þróun landbúnaðar á komandi árum:  

  • Landnýting Sjálfbær nýting beiti- og ræktunarlanda er lykilatriði ef tryggja á framtíð landbúnaðar á Íslandi. Vatn og nytjaland til ræktunar eru meðal mestu verðmæta samtímans hvert sem litið er í veröldinni. Mikilvægt er að sátt ríki um sjálfbæra landnýtingu.
  • Loftslagsmál – umhverfisvernd Samhliða sífellt minni losun gróðurhúsalofttegunda vegna athafna manna verður að minnka losun frá landi og binda kolefni í vistkerfum. Á þetta ber að leggja megináherslu í landbúnaðarstefnu. Verkið verður ekki unnið án þátttöku bænda og án þess að hlutur þeirra sé metinn til fjár á einn hátt eða annan.
  • Tækni – nýsköpun Með nýtingu nýrrar tækni má gjörbreyta aðferðum á sviði landbúnaðar eins og annars staðar. Þá hefur tækni til að tryggja rekjanleika matvæla allt frá beitarlandi til borðstofu tekið stórstígum framförum.

Í byrjun júní mun Kristján Þór efna til tíu opinna funda (með fyrirvara um sóttvarnareglur) um allt land til að kynna skjalið og eiga samtal um það.  Verkefnisstjórnin verður einnig á fundunum. Auk þess hefur umræðuskjalið þegar verið birt á Samráðsgátt stjórnvalda og verður hægt að veita umsögn þar til 26. maí nk. Þau sem vilja koma ábendingum á framfæri eru hvött til að gera það þar.Fundardagskráin er eftirfarandi: 

  1. Vesturland 1. júní kl.20:00. Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri.
  2. Ísafjörður 2. júní kl. 20:00Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði
  3. Blönduós 8. júní kl. 16:00. Félagsheimilið Blönduósi.
  4. Eyjafjörður 8. júní kl. 20:30. Hlíðarbær.
  5. Þistilfjörður 9. júní kl. 12:00. Svalbarðsskóli.
  6. Egilsstaðir 9. júní kl. 20:00. Valaskjálf.
  7. Höfn í Hornafirði 10. júní kl. 12:00. Nýheimar.
  8. Selfoss 14. júníkl. 20:00. Þingborg.
  9. Höfuðborgarsvæðið 15.júní kl. 20:00. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.
  10. Opinn fjarfundur. Nánar auglýstur síðar. 
 

Verkefnisstjórnin mun skila ráðherra fullmótaðri stefnu þegar unnið hefur verið úr þeim ábendingum sem koma fram við samráðið. 

Nánari upplýsingar: 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi
17. Samvinna um markmiðin
11. Sjálfbærar borgir og samfélög
9. Nýsköpun og uppbygging
2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum