Hoppa yfir valmynd

Frétt

31. maí 2021 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 1/2021

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

 
1. Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 35.000
2. Gisting í einn sólarhring kr. 22.100
3. Fæði hvern heilan dg, minnst 10 tíma ferðalag kr. 12.900
4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 6.450

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2021. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 2/2020 dags. 30. september 2020.

Nefndin fer þess á leit við ráðuneyti og stofnanir að viðmiðunarfjárhæðir um greiðslur dagpeninga um gistingu og veitingar verði kynntar starfsfólki.

Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Viðmið ferðakostnaðarnefndar eru hámarksupphæðir vegna greiðslu slíkra reikninga.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum