Hoppa yfir valmynd

Frétt

9. júní 2021 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Samstarf um föngun kolefnis og nýtingu glatvarma (1. áfangi)

Í dag undirrituðu þau Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Álfheiður Ágústsdóttir frá Elkem, Gestur Pétursson frá Veitum, Edda Sif Pind Aradóttir frá CarbFixog Ólafur Adolfsson stjórnarformaður Þróunarfélags Grundartanga, viljayfirlýsingu um að vinna saman að fjölnýtingu þeirra efnisstrauma sem til staðar eru á Grundartangasvæðinu og fela í sér í fyrsta áfanga:

  • Föngun á koldíoxíði úr útblæstri Elkem til niðurdælingar á Grundartanga eða (áfangi 2)  til framleiðslu rafeldsneytis.
  • Hagnýtingu glatvarma til raforkuframleiðslu og til uppsetningar á hitaveitu sem þjónað gæti iðnaðarsvæðinu á Grundartanga, Hvalfjarðarsveit og Akraneskaupstað og fyrirtækjum sem vilja nýta sér varmaorku í sinni starfsemi.

„Hér er stefnan tekin á tvö spennandi og góð verkefni sem samrýmast fullkomlega nýrri Orkustefnu fyrir Ísland: fjölnýtingu dýrmætra orkustrauma á borð við glatvarma, og hins vegar kolefnisföngun ýmist til niðurdælingar eða framleiðslu á rafeldsneyti. Þessi nýsköpunarverkefni stuðla ekki bara að markmiðum okkar Íslendinga um bætta orkunýtingu, orkuskipti og samdrátt í kolefnislosun heldur styrkja þau atvinnusvæðið á Grundartanga og þá miklu verðmætasköpun sem þar fer fram. Þetta er því gleðilegur áfangi og ég vil þakka Elkem, Veitum og CarbFix fyrir að setja stefnuna á þessi verkefni og Þróunarfelaginu fyrir að þjóna vel hagsmunum og tækifærum svæðisins,“ segir Þórdís Kolbrún. 

„Verkefnið sem unnið verður undir stjórn Þróunarfélags Grundartanga, fellur vel að loftslagsmarkmiðum Íslands en einnig að þróun í orkumálum og atvinnusköpun. Vonir standa til að verkefnið geti skapað umtalsverð verðmæti á komandi árum en það er hluti af uppbyggingu græns iðn- og auðlindaklasa á Grundartanga og munu niðurstöður þess nýtast á fleiri iðnaðarsvæðum á landinu.“ segir Ólafur

„Við höfum vart undan að svara óskum um samstarf víðsvegar um heiminn en það er gott að ráðast fyrst í þetta verkefni hér heima fyrir,“ segir Edda Sif. 

 

Verkefnið er liður í því að gera Ísland að kolefnishlutlausu samfélagi, bæta orkunýtni, nýta umframorku í raforkukerfinu, minnka losun gróðurhúsalofttegunda, auka hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa, efla orkuskipti, stuðla að grænni nýsköpun og efla rannsóknar- og þróunarstarf. Verkefnið snýr jafnframt að þróun nýrrar tækni með möguleikum á útflutningi á þeirri tækni til annarra landa.

 

Staðsetning verkefnisins á Grundartanga kemur til þar sem á því svæði er aðgangur að þeim efnisstraumum sem verkefnið þarfnast, þ.e. koldíoxíð og glatvarmi frá iðnaðarstarfsemi á svæðinu, gott aðgengi að endurnýjanlegri umfram raforku og afar góð hafnaraðstaða.

 

Vonir standa til þess að verkefnið styðji við áframhaldandi uppbyggingarskeið á Grundartanga sem grundvallað verði á nýsköpun, umhverfisvænum lausnum, verðmætasköpun og klasasamstarfi öflugra fyrirtækja, stofnana og opinberra aðila.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum