Hoppa yfir valmynd

Frétt

14. júní 2021 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á EFTA tollkvóta 2021-2022

Föstudaginn 25. maí 2021 rann út umsóknarfrestur um EFTA tollkvótum á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss, vegna innflutnings á nautakjöti úr vörulið ex0210.xxxx og ostum 0406.xxxx fyrir tímabilið 1. júlí 2021 – 30. júní 2022.

Samtals bárust fjórar umsóknir frá aðilum um tollkvótann. Til útboðs kom á tollkvótum á nautakjöti og ostum þar sem umsótt magn var meira en það magn sem í boði var á grundvelli reglugerðar nr. 542/2021.

Samtals bárust þrjú gild tilboð í tollkvótann.

Tvö tilboð bárust um innflutning á nautakjöti úr vörulið ex0210.xxxx, samtals 15.000 kg. á meðalverðinu 1 kr./kg.  Hæsta boð var 2 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 10.000 kg. á meðalverðinu 1 kr./kg.

Tvö tilboð bárust um innflutning ostum, úr vörulið 0406.xxxx, samtals 30.000 kg. á meðalverðinu 7 kr./kg. Hæsta boð var 23 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 15.000 kg. á meðalverðinu 14 kr./kg.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli umsókna:

Nautakjöt fyrir tímabilið júlí 2021 – júní 2022

Magn (kg)  

Tilboðsgjafi

5.000

Ekran hf

5.000

Innnes hf

Ostur fyrir tímabilið júlí 2021 – júní 2022

Magn (kg)  

Tilboðsgjafi

15.000

Nathan & Olsen ehf

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið Sþ: 15 Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum