Hoppa yfir valmynd

Frétt

15. júní 2021 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Tæknisetur formlega stofnað: Þórdís Kolbrún skipaði stjórn

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra fundaði með stjórn Tækniseturs á fyrsta fundi stjórnar en undirbúningur við stofnun Tækniseturs gengur vel.

Á fundinum tók stjórnin formlega við þeim verkefnum sem undirbúningshópur hefur unnið að á síðustu mánuðum. Tæknisetur hefur nú verið formlega stofnað og eitt fyrsta verkefni nýrrar stjórnar er ráðning starfsfólks og stefnumótun og skipulag starfseminnar á næstu árum.

Tæknisetur verður rekið sem óhagnaðardrifið félag sem á ekki í samkeppni við einkafyrirtæki og stofnanir og verður alfarið í eigu ríkisins, þar sem ríkið leggur fram hluta af tækjabúnaði og eignum Nýsköpunarmiðstöðvar sem stofnframlag. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið mun leggja félaginu til árlegt fjárframlag gegnum þjónustusamninga. Tæknisetri sé ætlað að vera brú milli háskólasamfélags og atvinnulífs á sviði tæknigreina og liður í uppbyggingu þekkingarþorps í Vatnsmýrinni.

 

Stjórn Tækniseturs skipa 

  • Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, fjárfestingastjóri hjá Brunni Ventures og frumkvöðull, stjórnarformaður
  • Sigurður Magnús Garðarsson, forseti Verkfræði og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands
  • Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík
  • Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands
  • Þór Sigfússon, stjórnarformaður Sjávarklasans 
  • Varamenn eru þau Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir verkefnisstjóri á Vísinda- og nýsköpunarsviði Háskóla Íslands og Alexander Jóhönnuson frumkvöðull
  • Svafa Grönfeldt prófessor við Massachusetts Institute of Technology (MIT) í Boston, verður Tæknisetri til ráðgjafar um alþjóðlegt samstarf

 

Hér má finna heimasíðu Tækniseturs: www.taeknisetur.is

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
11. Sjálfbærar borgir og samfélög
9. Nýsköpun og uppbygging

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum