Hoppa yfir valmynd

Frétt

25. júní 2021 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Mikilvægt að starfsreglur alþjóðlegra tæknifyrirtækja vegna upplýsingaóreiðu gildi einnig hér á landi

Unnið er að því að starfsreglur alþjóðlegra tæknifyrirtækja á borð við Google, Facebook, Twitter, Microsoft og TikTok, og alþjóðlegra auglýsenda og auglýsingastofa, taki einnig til starfsemi á Íslandi. Reglur þessar (e. Code of Practise on Disinformation) voru þær fyrstu sinnar tegundar á heimsvísu og tóku gildi innan ríkja Evrópusambandsins árið 2018.

Með setningu fyrrgreindra starfsreglna gengust tæknifyrirtækin undir fjölþættar skuldbindingar og þar með við mikilvægu hlutverki sínu í baráttunni gegn upplýsingaóreiðu og miðlun falsfrétta. Mikilvægt er að starfsemi fyrrgreindra fyrirtækja á Íslandi falli einnig reglurnar enda geti almenningur með því móti fundið upplýsingar um hverjir standi að baki efni sem birtist á samfélagsmiðlum, t.d. pólitískum auglýsingum og skoðanaauglýsingum, fengið upplýsingar um dreifingu falsfrétta og upplýsingar um ráðstafanir fyrirtækjanna til að sporna gegn ólöglegu efni.

Fulltrúar ráðuneytisins vinna að máli þessu í samstarfi við fjölmiðlanefnd og utanríkisráðuneytið.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum