Hoppa yfir valmynd

Frétt

7. júlí 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Atvinnuleysi mælist 7,3% í júní – 1,8% lækkun milli mánaða

Skráð atvinnuleysi mældist samkvæmt bráðabirgðatölum 7,3% í júní en var 9,1% í maí. Nemur lækkunin á milli mánaða því 1,8 prósentustigi, en á milli apríl og maí lækkaði almennt skráð atvinnuleysi um 1,3%, sem var mesta lækkun milli mánaða frá árinu 1994. Í janúar á þessu ári mældist atvinnuleysi 11,6% og hefur atvinnuleysi því minnkað um 4.3% á árinu.

Atvinnulausum fækkaði um tæplega 3,300 milli mánaða á landsvísu en fækkaði um 2,400 á milli apríl og maí. Alls nemur fækkunin því 5,700 einstaklingum frá því í apríl. Fjöldi þeirra sem skráður er án atvinnu hjá Vinnumálastofnun minnkaði í öllum landshlutum milli maí og júní, fyrir utan Norðurland vestra þar sem almennt skráð atvinnuleysi var 2,9% í maí. Fjöldi þeirra sem skráður er án atvinnu hjá Vinnumálastofnun hefur minnkað mikið í öllum landshlutum á árinu 2021. Minnsta hlutfallslega fækkunin er á höfuðborgarsvæðinu þar sem atvinnuleitendum hefur fækkað um 27% en á öðrum landssvæðum hefur þeim fækkað á bilinu 37%-56%.

Sumarstörf námsmanna

Mikill áhugi var á átaksverkefni stjórnvalda til að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn. Stjórnvöld réðust í átak til að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn, Markmiðið var að til yrðu 2.500 tímabundin störf fyrir námsmenn, 18 ára og eldri, í samvinnu við atvinnulífið, opinberar stofnanir, sveitarfélög og félagasamtök. Alls úthlutaði Vinnumálastofnun 2.610 ráðningarheimildum og kom alls til 2.488 ráðninga í sumarstörf á grundvelli átaksins.

Hefjum störf

Alls hefur Vinnumálastofnun haft milligöngu við ráðningu rúmlega 4.200 atvinnuleitenda á grundvelli átaksins Hefjum störf. Alls hafa um 11.300 störf verið skráð í átakinu. Um helmingur þeirra samninga sem höfðu verið gerðir á grundvelli átaksins hinn 1. júlí voru vegna starfa á höfuðborgarsvæðinu, eða rúmlega 2.200. Næst á eftir komu Suðurnes þar sem gerðir höfðu verið 658 samningar og því næst Suðurland þar sem gerðir höfðu verið 583 samningar. Það sem af er ári hafa um 3.400 atvinnuleitendur hafnað starfstilboði. Algengasta ástæða höfnunar er að viðkomandi sé þegar kominn í starf. Mál um 1.600 atvinnuleitenda hafa verið tekin til umfjöllunar á Greiðslustofu Vinnumálastofnunar þar sem metið er hvort ákvörðun um að hafna starfstilboði sé réttlætanleg. Þar af hafa um 950 atvinnuleitendur hafa verið beittir viðurlögum.

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra: „Atvinnuleysi minnkar sögulega mikið annan mánuðinn í röð sem er mjög ánægjulegt. Þá er mikið gleðiefni hversu vel gekk að koma námsmönnum í starf í sumar og hversu góðar viðtökur Hefjum störf hefur fengið. Þessar jákvæðu tölur sýna okkur að þær aðgerðir sem við höfum sett af stað til þess að koma atvinnulífinu aftur af stað eru að virka.”

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum