Hoppa yfir valmynd

Frétt

7. júlí 2021 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Grænbók um fjarskipti kynnt í samráðsgátt

Grænbók um fjarskipti, þar sem metin er staða málaflokksins og lagður grundvöllur fyrir endurskoðaða stefnumótun í fjarskiptum til fimmtán ára, hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar um grænbókina en frestur til að skila umsögn er til og með 11. ágúst 2021.

Ísland hefur náð góðum árangri á sviði fjarskipta, en þó er margt hægt að bæta. Góð fjarskipti eru lykilþáttur í að stuðla að því að Ísland sé í fremstu röð með trausta og örugga innviði, öflug sveitarfélög, verðmætasköpun og framsækna þjónustu. Meginmarkmið áætlana samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis eru m.a. að þjónusta samgöngu- og fjarskiptakerfa mæti þörfum samfélagsins og stuðli að sjálfbærum byggðum um land allt.

Grænbók um fjarskipti er hluti af stefnumótunarferli fjarskiptaáætlunar. Viðfangsefni grænbókar er að hvetja til umræðu um stöðumat, viðfangsefni og framtíðarsýn á sviði fjarskipta, og á þeim grundvelli móta áherslur og valkosti. Stöðumatið er í framhaldi lagt til grundvallar stefnumótunar í málaflokknum.

Grænbók þessari er ætlað að veita upplýsingar um núverandi stöðu fjarskiptamála. Stöðumat grænbókarinnar byggir m.a. stöðu verkefna núgildandi fjarskiptaáætlunar, samráðsfundum með landshlutasamtökum, sem og samráðsfundum með öðrum ráðuneytum og samstarfsaðilum. Loks eru drög grænbókar nú birt í samráðsgátt stjórnvalda og óskað eftir athugasemdum og sjónarmiðum. 

Í fyrirhugaðri stefnu um fjarskipti er ætlunin að mæta umtalsverðri og fyrirsjáanlegri tækniþróun, breyttum kröfum samfélagsins og taka mið af samhæfingu stefna og áætlana sem falla undir málefnasvið ráðuneytisins. Undir málaflokkinn fjarskipti falla viðfangsefni Fjarskiptastofu, úrskurðarnefndar fjarskiptamála, fjarskiptasjóðs, Þjóðskrár Íslands og yfirfasteignamatsnefndar eða með öðrum orðum fjarskipti og tiltekin málefni Þjóðskrár Íslands.

Stefna og áætlun á sviði netöryggismála verður áfram hluti stefnu og áætlunar í fjarskiptum. Undirbúningur og vinnsla netöryggisáætlunar hefur þó verið skilin frá undirbúningi fjarskiptaáætlunar, en verður felld inn í stefnu og áætlun um fjarskipti á síðari stigum með það fyrir augum að ráðherra mæli fyrir nýrri samhæfðri fjarskiptaáætlun á fyrri hluta árs 2022.

Grænbókin er umræðuskjal og er almenningi og haghöfum boðið að leggja fram sín sjónarmið sem nýst gætu í stefnumótuninni. Í grænbókinni er sérstaklega kallað eftir umræðu um stöðumat grænbókar, lykilviðfangsefni, forgangsröðun, mælikvarða og framtíðarsýn á sviði fjarskipta.

Um er að ræða fyrstu grænbókina, sem tekin hefur verið saman um fjarskipti í samræmi við stefnumótunarferli Stjórnarráðsins og samræmingu áætlana á sviði samgöngu-, fjarskipta-, sveitarstjórnar- og byggðamála. Markmið grænbókarinnar er að hvetja til umræðu um stöðumat, viðfangsefni og framtíðarsýn í fjarskiptum sem og um áherslur og valkosti. 

Að loknu samráði eru niðurstöður dregnar saman og grænbókin gefin út. Í kjölfarið verður hafin vinna við mótun stefnu sem inniheldur framtíðarsýn fyrir málaflokkinn og markmið sem marka leiðina ásamt áherslum (hvítbók).

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum