Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. júlí 2021 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Opnað fyrir styrkumsóknir í LIFE-áætluninni

Opnað hefur verið fyrir styrkumsóknir vegna LIFE-áætlunar Evrópusambandsins. Upplýsingar um umsóknarfrest er að finna undir hverjum styrk sem auglýstur er, ásamt ítarlegu kynningarefni um styrkina.

Alls eru rúmlega 5,4 milljarðar evra til úthlutunar á tímabilinu, sem tekur til áranna 2021-2027. Lögð er áhersla á fjögur meginsvið, þ.e. náttúru og líffræðilega fjölbreytni, hringrásarhagkerfið og lífsgæði, loftslagsbreytingar - aðlögun og aðgerðir og orkuskipti.

LIFE áætlunin er samkeppnissjóður ESB sem hefur fjármagnað verkefni á sviði  loftslags- og umhverfismála frá árinu 1992.

Þetta er í fyrsta skipti sem Ísland tekur þátt í LIFE-áætluninni, en þátttakan gerir ólíkum aðilum á Íslandi, s.s. sveitarfélögum, frjálsum félagasamtökum, stofnunum og fyrirtækjum kleift að sækja um styrki til umhverfisverkefna á sviði LIFE-áætlunarinnar. Auk þess er hægt að sækja um rekstrarstyrki til óhagnaðardrifinnar starfsemi félagasamtaka sem styður við markmið LIFE-áætlunarinnar.

Frekari upplýsingar er að finna á vef LIFE-áætlunarinnar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum