Hoppa yfir valmynd

Frétt

20. júlí 2021 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ísland og Sviss undirrita samstarfsyfirlýsingu á sviði loftslagsmála

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra hefur undirritað viljayfirlýsingu fyrir Íslands hönd um samstarf við svissnesk stjórnvöld á sviði loftslagsmála.

Guðmundur Ingi átti fund með Katrin Schneeberger, ráðuneytisstjóra svissneska umhverfisráðuneytisins, sem undirritaði yfirlýsinguna fyrir hönd Sviss. Guðmundur Ingi er staddur í Ljúbljana í Slóveníu vegna óformlegs ráðherrafundar umhverfisráðherra Evrópusambandsins og EFTA ríkjanna.

Í yfirlýsingunni er lýst vilja stjórnvalda beggja ríkjanna til að hefja samstarf á sviði loftslagsmála þar sem sjónum verði einkum beint að samvinnu á sviði föngunar og förgunar kolefnis úr andrúmslofti. Ísland og Sviss hafa bæði skuldbundið sig til þess að draga úr losun á gróðurhúsalofttegundum á grundvelli Parísarsamningsins.

Mikill áhugi er af hálfu ýmissa innlendra og erlendra aðila að vinna að föngun og förgun kolefnis á Íslandi. 

„Loftslagsváin er stóra áskorun samtímans,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra. „Til þess að takast á við hana þurfum við að beita aðferðum sem við þekkjum nú þegar, en samtímis að efla nýsköpun svo nýjar aðferðir bætist við. Þótt verkefni ríkja heims sé fyrst og fremst að draga úr losun hef ég líka lagt áherslu á kolefnisbindingu, þ.e.a.s. að binda koldíoxíð sem þegar hefur verið sleppt út í andrúmsloftið. Landgræðsla, skógrækt og endurheimt votlendis eru leiðir sem við þekkjum og þurfum að beita af öllu afli, en föngun, förgun og hagnýting kolefnis getur líka verið mikilvægur hluti af lausninni. Ég fagna því samstarfi Íslands og Sviss á þessu sviði með það að markmiði að ná árangri í loftslagsmálum fyrir heiminn allan.“ 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum