Hoppa yfir valmynd

Frétt

26. júlí 2021 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins

Með vísan til samnings milli Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins nr. 600/2021, er hér með auglýst eftir umsóknum um eftirfarandi tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum, upprunnum í ríkjum Evrópusambandsins og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 16. september – 31. desember 2021:

Vöruliður:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

kg

%

kr./kg

0201/0202

Kjöt af dýrum af nautgripakyni, nýtt, kælt eða fryst

16.09. - 31.12.21

232.000

0

0

0203

Svínakjöt, nýtt, kælt eða fryst

16.09. - 31.12.21

234.000

0

0

0207

Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst

16.09. - 31.12.21

286.000

0

0

ex0207

Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst, lífrænt ræktað/lausagöngu

1.09. - 31.12.21

66.000

0

0

0210

Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum

16.09. - 31.12.21

34.000

0

0

ex 0406

Ostur og ystingur (**)

16.09. - 31.12.21

76.000

0

0

0406

Ostur og ystingur

16.09. - 31.12.21

126.000

0

0

1601

Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum

16.09. - 31.12.21

84.000

0

0

1602

Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum

16.09. - 31.12.21

134.000

0

0

(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, verður leitað tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Berist umsóknir um meira magn innflutnings vara úr vörulið ex 0406(**) en auglýstum tollkvóta nemur verður tollkvótanum úthlutað eftir hlutkesti. Úthlutun er ekki framseljanleg. Vörumagni vegna ársins 2021 er úthlutað í þrennu lagi, þ.e. því er skipt upp í 1/3 hluta fyrir hvert tímabil ársins.

Umsóknar- og tilboðsferli vegna úthlutunar tollkvótans fer fram með rafrænum hætti á vefkerfinu tollkvoti.is. Nýskráning notenda í vefkerfið fer fram hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Ef óskað er eftir nýskráningu notenda skal hafa samband við ráðuneytið í síma 545-9700 eða á [email protected]. Sjá eftirfarandi ítarefni vegna úthlutunar tollkvóta.

Opnað verður fyrir umsóknir á tollkvoti.is þann 26. júlí og skulu umsóknir berast fyrir kl. 16.00, mánudaginn 9. ágúst 2021.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu,

26. júlí 2021

 

Ítarefni:

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum