Hoppa yfir valmynd

Frétt

6. ágúst 2021 Matvælaráðuneytið

Auglýst eftir umsóknum um jarðræktarstyrki í garðyrkju

 

Opnað hefur verið fyrir rafrænar umsóknir um jarðræktarstyrki í garðyrkju vegna útiræktunar á grænmeti, kartöflum og garð­ávöxtum til manneldis á Afurð.is, greiðslukerfi landbúnaðarins.

Umsóknum skal skilað eigi síðar en 15. ágúst næstkomandiVakin er athygli á að hægt er að skila skýrslu í Jörð og umsókn í AFURÐ án þess að endanleg uppskera ársins liggi fyrir.

Skilyrði fyrir veitingu stuðnings eru skil á skýrsluhaldi í skýrsluhaldsforritinu Jörð og fullnægjandi túnkort af ræktunar­spildu sem sótt er um styrk fyrir. Kortið á að sýna þær ræktunarspildur sem eru grund­völlur að styrkjum. Þá er lögð áhersla á skráningu ræktunar, áburðargjafar, varnarefnanotkunar o.fl., í samræmi við ákvæði reglugerðar um stuðning við garðyrkju nr. 1273/2020.

Framlag á hvern hektara (ha) fyrir hvert bú tekur mið af heildarfjölda hektara sem sótt er um. Fjöldi hektara sem sótt er um reiknast í samræmi við eftirfarandi stuðla:

Fjöldi ha sem sótt er um            Stuðull umsóttra ha

1-30 ha                                    1,0 fyrir rótarafurðir

1-30 ha                                    4,0 fyrir afurðir ræktaðar ofanjarðar

> 30 ha                                    0,7 fyrir rótararfurðir

> 30 ha                                    3,0 fyrir afurðir ræktaðar ofanjarðar

 

Hver framleiðandi getur ekki fengið hærri greiðslur samtals en 10% af því fjármagni sem til ráð­stöf­unar er árlega.

 

Vinsamlegast athugið að auglýsingin var uppfærð þann 6.8.2021.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum