Hoppa yfir valmynd

Frétt

20. ágúst 2021 Utanríkisráðuneytið

Framlög til mannúðaraðstoðar vegna stöðunnar í Afganistan

Utanríkisráðuneytið hefur tilkynnt um 60 milljóna króna framlag til mannúðaraðstoðar í Afganistan. Verður framlaginu skipt jafnt á milli Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) og Alþjóðaráðs Rauða krossins (ICRC). Báðar stofnanirnar hafa sérstöðu á sínu sviði, einkum hvað varðar aðgengi og þjónustu við fólk á átakasvæðum.

Átök hafa staðið yfir í Afganistan í rúm fjörutíu ár og hefur mannúðarástand lengi verið mjög slæmt. Fyrr á árinu áætluðu Sameinuðu þjóðirnar að um helmingur afgönsku þjóðarinnar, eða um 18,4 milljónir, hafi þurft nauðsynlega á mannúðaraðstoð að halda og að einn af hverjum þremur íbúum hafi búið við hungur. Þá eru hátt í þrjár milljónir manna á flótta innanlands. 

Ljóst er að eftir atburði síðustu daga muni ástandið fara versnandi. Sameinuðu þjóðirnar hafa ítrekað mikilvægi þess að mannúðaraðgerðir haldi áfram í landinu en skortur á fjármagni til að veita lífsbjargandi aðstoð muni hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir afgönsku þjóðina.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum