Hoppa yfir valmynd

Frétt

26. ágúst 2021 Heilbrigðisráðuneytið

​COVID-19: Tilslakanir á sóttvarnaráðstöfunum frá og með 28. ágúst

Fjöldatakmarkanir miðast áfram við 200 manns og reglur um 1 metra nálægðarmörk og grímuskyldu verða óbreyttar. Aftur á móti verður sund- og baðstöðum, heilsu- og líkamsræktarstöðvum heimilt að taka á móti leyfðum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi, eins metra regla felld niður meðal áhorfenda á íþróttaviðburðum og í sviðslistum, auk fleiri tilslakana sem nánar eru raktar hér að neðan. Heilbrigðisráðherra kynnti þessar breytingar á fundi ríkisstjórnar í morgun og eru þær í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Reglugerð þessa efnis tekur gildi 28. ágúst og gildir til 17. september.

Í minnisblaði sóttvarnalæknis kemur meðal annars fram að frá því að gildandi reglugerð tók gildi 25. júlí 2021 hafi faraldur Covid-19 verið á hægri niðurleið hér á landi. Einnig hafi komið í ljós að áhættan á smiti hjá óbólusettum sé tvöföld miðað við áhættuna hjá bólusettum og þá sé áhættan á innlögn á sjúkrahús fjórföld hjá óbólusettum miðað við bólusetta og sexföld þegar innlögn á gjörgæsludeild sé skoðuð. Þannig megi fullyrða að útbreidd bólusetning hér á landi hafi komið í veg fyrir smit en sérstaklega hindrað alvarlegar afleiðingar COVID-19. Sóttvarnalæknir bendir á að útbreiðsla faraldursins innanlands í kjölfar þess að öllum takmörkunum innanlands var aflétt í byrjun júlí hafi verið hröð og því telji hann mikilvægt að fara varlega í afléttingar innanlands og á landamærum á næstunni.

Samkomutakmarkanir frá og með 28. ágúst til 17. september

  • Áfram verður miðað við 200 manna fjöldatakmarkanir, 1 metra nálægðartakmörkun og almenna grímuskyldu.
  • Sund- og baðstaðir; heimilt að opna fyrir leyfðan hámarksfjölda samkvæmt starfsleyfi.
  • Heilsu- og líkamsræktarstöðvar; heimilt að opna fyrir leyfðan hámarksfjölda samkvæmt starfsleyfi.
  • Íþróttir: Iðkendur mega vera 200 manns á íþróttaæfingum og -keppnum.
  • Eins metra regla fellur niður meðal áhorfenda á íþróttaviðburðum og í sviðslistum.
  • Veitingasala heimiluð í hléum á íþróttaviðburðum og sviðslistum.
  • Heimild fyrir 200 manns í sviðslistum , bæði á æfingum og sýningum.
  • Eins metra regla fellur niður við athafnir trú- og lífsskoðunarfélaga.
  • Söfn; heimilt að taka á móti leyfilegum hámarksfjölda samkvæmt starfsleyfi að gættri 1 metra reglu.
  • Veitingastaðir; heimilt að taka á móti 200 gestum í rými. Gestir skulu skráðir í sæti í samræmi við ákvæði reglugerðar.
  • Skráningarskylda: Á öllum viðburðum verður skylt að skrá gesti í sæti, líkt og á veitingastöðum, í samræmi við ákvæði reglugerðar. Skráningarskyldan á einnig við um einkasamkvæmi sem haldin eru á veitingastöðum eða viðlíka stöðum þar sem áfengisveitingar eru heimilar.

Hraðpróf og fjölmennir viðburðir – gildistaka 3. september 

Sóttvarnalæknir leggur til að tekin verði upp notkun hraðprófa í tengslum við fjölmenna viðburði en mælir ekki með notkun sjálfsprófa þar sem þau séu ekki nógu nákvæm. Unnið verður að útfærslu á tillögum sóttvarnalæknis á næstu dögum miðað við að hægt verði að hafa  500 manns í hólfi á sitjandi viðburðum og engin fjarlægðarmörk miðað við notkun hraðprófa. Sú útfærsla verður unnin í nánu samráði við þau sem standa fyrir stórum viðburðum. Ákvæði nýrrar reglugerðar um takmarkanir á samkomum sem snýr að notkun hraðprófa á viðburðum tekur gildi 3. september og verður þá kynnt sérstaklega.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum