Hoppa yfir valmynd

Frétt

3. september 2021 Heilbrigðisráðuneytið

Fyrsta skóflustungan að nýju rannsóknahúsi

Heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, tók í dag fyrstu skóflustungu að nýju rannsóknahúsi ásamt Páli Matthíassyni, forstjóra Landspítala, Unni Brá Konráðsdóttur, formanni stýrihóps Landspítala, og Jóni Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands.

Rannsóknahúsið, sem mun rísa vestan Læknagarðs HÍ, er ein af byggingum í heildaruppbyggingu Nýs Landspítala við Hringbraut og verður um 17.400 fermetrar að stærð.

„Þetta eru stór tímamót og mikill áfangi að sjá draum okkar landsmanna um uppbyggingu Landspítala rætast. Framkvæmdir hér á svæðinu hafa gengið vel og færa okkur nær þvi markmiði að hér verði tekið í notkun nýtt þjóðarsjúkrahús árið 2026. Nýtt, öflugt og tæknivætt rannsóknahús er mikilvægur þáttur í því að geta veitt skilvirka og margbrotna þjónustu fyrir landið allt í takt við nýjustu þekkingu í heilbrigðisvísindum til framtíðar,“ sagði Svandís við tilefnið.

Þjónusta mun taka stórstígum framförum

Rannsóknahúsið verður á fjórum hæðum ásamt kjallara en þar sameinast öll rannsóknastarfsemi spítalans á einn stað. Starfseiningar þar verða lífsýnasafn, meinafræði, rannsóknakjarni, klínísk lífefnafræði og blóðmeinafræði, frumuræktunarkjarni, frumumeðhöndlun, erfða- og sameindalæknisfræði, ónæmisfræði og sýkla- og veirufræði.

„Rannsóknahúsið og rannsóknastarfsemi Landspítala er og verður áfram einn af burðarásum í fjölþættri starfsemi okkar. Það er gríðarlega mikilvægt að þær dreifðu og fjölmörgu stofur sem nú eru starfandi á nokkrum stöðum á höfuðborgasvæðinu fái einn nútíma samastað," segir Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala. „Starfsemi hússins mun taka mið af því besta og margt sem við erum að kljást við í dag í þjónustu við sjúklinga mun taka stórstígum framförum. Það er því gleðiefni að við séum komin jafn langt og raun ber vitni við uppbygginguna hér við Hringbraut.”

Rannsóknahúsið tengist meðferðakjarna og öðrum byggingum spítalans með sérstöku rörpóstkerfi og göngum neðanjarðar. Með því munu deildir spítalans geta sent sýni til rannsókna í rannsóknahús á örfáum mínútum.

Tæknisvæði verður á fimmtu hæð byggingarinnar og hugmyndir eru einnig um möguleika á þyrlupalli. Þá mun starfsemi Blóðbanka flytjast í bygginguna og í tengslum við meinafræðieiningu verður líkhús og aðstaða fyrir krufningu og réttarmeinafræði.

Uppsteypun hefst í byrjun næsta árs

„Jarðvinnan hér, sem Háfell ehf. mun sinna, mun kallast á við það stóra uppsteypuverk sem Eykt hf. vinnur að í Hringbrautarverkefninu vegna meðferðarkjarna nýs þjóðarsjúkrahúss. Jarðvinnu rannsóknahússins mun ljúka í upphafi næsta árs og þá hefst fljótlega uppsteypa," segir Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri Nýs Landspítala, og bætir við að einnig sé stutt í að vinna við bílastæða- og tæknihúsið hefjist ásamt uppbyggingu bílakjallarans. „Starfsmannafjöldinn hér á svæðinu nálgast 700 manns þegar mest verður, en auk þess er mikill fjöldi ráðgjafa og hönnuða á arkitekta- og verkfræðistofum starfandi við uppbyggingu nýs Landspítala.”

Hönnunarhópurinn Corpus er aðalhönnuður hússins. Að honum standa níu innlend og erlend hönnunarfyrirtæki. Aðaluppdrættir hússins liggja nú þegar fyrir og hönnun lýkur á næsta ári.

  • Fyrsta skóflustungan að nýju rannsóknahúsi  - mynd úr myndasafni númer 1
  • Fyrsta skóflustungan að nýju rannsóknahúsi  - mynd úr myndasafni númer 2

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum