Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. september 2021 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Vatnasvið Jökulfalls og Hvítár í Árnessýslu friðlýst gegn orkunýtingu

Ferðamenn við Gýgjarfoss í Jökulfalli á Kili. - myndGuðmundur Ögmundsson

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, undirritaði í dag friðlýsingu vatnasviðs Jökulfalls og Hvítár í Árnessýslu gegn orkuvinnslu í samræmi við lög um verndar- og orkunýtingaráætlun (rammaáætlun).

Jökulárnar Jökulfall og Hvítá eiga upptök sín á miðhálendi Íslands. Jökulfallið myndast við sameiningu nokkurra kvísla úr Hofsjökli og Hvítá, þriðja lengsta á landsins, rennur úr Hvítárvatni við Langjökul. Árnar sameinast svo rétt ofan við Gullfoss og óbeislaðar veita þær fossinum kraft sinn. Vatnasvið beggja ánna er óraskað, auk þess sem landsvæðið býr yfir lítt röskuðu votlendi og óbyggðum víðernum.  

Verndarsvæðið er 1544 km² að stærð, en friðlýsingin nær til alls vatnasviðs Jökulfalls, þar sem Gýgjarfossvirkjun var fyrirhuguð, og Hvítár ofan stíflumannvirkja, áður fyrirhugaðrar Bláfellsvirkjunar, og meginfarvegs Hvítár að efstu mörkum fyrirhugaðs lóns Búðartunguvirkjunar eins og hún er kynnt í 3. áfanga rammaáætlunar.

Í ljósi þess að árnar sameinast og vatnasvið Gýgjarfossvirkjunar er hluti af vatnasviði Bláfellsvirkjunar er friðlýst eitt samfellt svæði sem nær til vatnasviðs beggja virkjunarkosta.

 „Nú er enn eitt svæðið á hálendi Íslands komið í var fyrir virkjunum“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra. „Þetta er 28. friðlýsingin sem ég undirrita í minni ráðherratíð og allar eru þær hluti af átaki í friðlýsingum sem ég setti af stað í upphafi kjörtímabilsins. Þessi friðlýsing er auðvitað á grundvelli ákvörðunar Alþingis frá árinu 2013. Átakið hefur verið unnið í samstarfi Umhverfisstofnunar og umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og ég er afar stoltur af þeim árangri sem við höfum náð.“

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum