Hoppa yfir valmynd

Frétt

20. september 2021 Innviðaráðuneytið

Þekkingarsetur á Laugarvatni um úrgangsmál veitir sveitarfélögum landsins ráðgjöf

Ásgerður Kristín Gylfadóttir, formaður bæjarráðs á Hornafirði og formaður SASS, og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, við undirritun samkomulags um þekkingarsetrið. - mynd

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, undirritaði nýlega samkomulag um fjárstuðning við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga til að stofna þekkingarsetur á Laugarvatni um úrgangsmál. Tilgangur þekkingarsetursins er að aðstoða sveitarfélög að innleiða hringrásarhagkerfi í úrgangsmálum með megináherslu á endurnýtingu og þar með að draga úr urðun heimilisúrgangs - sem er stórt loftslagsmál. Ásgerður Kristín Gylfadóttir, formaður bæjarráðs á Hornafirði og formaður SASS undirritaði samkomulagið ásamt Sigurði Inga.

Í samkomulaginu segir að markmiðið sé að leiða saman sveitarfélög, atvinnulíf og háskóla til að vinna að samfélagslegri uppbyggingu, sem byggi á stoðum fræðimennsku, hagkvæmni einkaframtaksins og vilja til að gera enn betur.

„Með þessari styrkveitingu er ætlunin að skapa mikilvægan vettvang til að veita sveitarfélögum ráðgjöf og gera kleift að standa við markmið sín varðandi úrgangsmál og stuðla að framþróun og uppbyggingu á því sviði,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Þekkingarsetrið mun aðstoða sveitarfélög við að halda utan um málaflokkinn og laga sig að nútímalegri úrgangsstjórnun. Það mun einnig birta upplýsingar um þjónustugjöld og raunkostnað við afsetningu úrgangs í öllum sveitarfélögum og koma á samræmingu á úrgangsgögnum frá mismunandi þjónustuaðilum.

Samkomulagið gildir til ársins 2024 og nemur fjárstyrkurinn 5.870.000 kr.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum