Hoppa yfir valmynd

Frétt

24. september 2021 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Fyrsta aðgerðaáætlun nýrrar menntastefnu kynnt

Fyrsta aðgerðaáætlun nýrrar menntastefnu hefur verið lögð fram. Aðgerðaáætlunin er unnin á grundvelli ályktunar Alþingis frá 24. mars sl. og var nú var hún unnin innan þess 6 mánaða tímafrests sem Alþingi ákvað. Að baki henni var umfangsmikið samráð og greiningarvinna sem staðið hefur yfir frá árinu 2018. Markmið þeirrar vinnu var að skýra sýn á þróun og uppbyggingu íslenska menntakerfisins til framtíðar í ljósi þeirra áskorana sem það mætir, m.a. vegna örra samfélags- og tæknibreytinga. Í fyrstu aðgerðaáætluninni eru 9 meginaðgerðir tilgreindar en þær snerta á þeim fimm stoðum sem ný menntastefna hvílir á; jöfnum tækifærum fyrir alla, kennslu í fremstu röð, hæfni fyrir framtíðina, vellíðan í öndvegi og gæði í forgrunni.

Meginaðgerðir í fyrstu aðgerðaáætlun eru:

• Heildstæð skólaþjónusta byggð á þrepaskiptum stuðningi sem styður við nám og farsæld barna og ungmenna.
• Skólaþróun um land allt.
• Markviss stuðningur við nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
• Fjölgun kennara með leyfisbréf.
• Hæfni fagstétta í skólastarfi.
• Gagnrýnin hugsun, sköpun og skilningur.
• Mótun hæfnistefnu Íslands í virku samráði.
• Raddir unga fólksins – virkt nemendalýðræði á öllum skólastigum.
• Vönduð náms- og kennslugögn fyrir allt menntakerfið

Meðal mikilvægustu áherslusviða sem horft var til eru annars vegar að styrkja grunnmenntun og leita leiða til þess að auka vellíðan og árangur nemenda á fyrstu skólastigunum og hins vegar að bæta og aðlaga þá hæfni sem samfélagið í heild sinni þarfnast til þess mæta áskorunum nútímans og framtíðarinnar. Menntastefna er veigamikill hluti í þróun hæfnistefnu Íslands, það er að segja kortlagningar þeirrar hæfni sem samfélagið þarf að búa yfir til að nýta mannauð sinn og aðrar auðlindir sem best, til að tryggja samkeppnishæfni og lífsgæði borgaranna.

Unnið er að skilgreiningu mælikvarða og útfærslu einstakra verkþátta aðgerðanna. Innleiðingu menntastefnunnar verður skipt í þrjú tímabil og verður áætlun lögð fram við upphaf hvers þeirra.

Í ráðgefandi stefnuhópi sem unnu að mótun aðgerðaáætlunarinnar í sumar voru:

  • Arnór Guðmundsson, Menntamálastofnun
  • Derek Allen, Landsambandi íslenskra stúdenta
  • Fanney Dóróthea Halldórsdóttir, Grunni – félagi fræðslustjóra og stjórnenda skólaskrifstofa
  • Hildur Björgvinsdóttir, Sambandi íslenskra framhaldsskólanema
  • Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, Skólameistarafélagi Íslands
  • Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, Samtökum atvinnulífsins
  • Kolbrún Þ. Pálsdóttir, Samstarfsnefnd háskólastigsins
  • Ragnar Þór Pétursson, Kennarasambandi Íslands
  • Renata Emilsson Peskova, Móðurmáli – samtökum um tvítyngi
  • Sigrún Edda Eðvarðsdóttir, Heimili og skóla – Landsamtökum foreldra
  • Svandís Ingimundardóttir, Sambandi íslenskra sveitarfélaga
  • Tryggvi Thayer, sérfræðingur í framtíðarkennslu


    Fyrsta aðgerðaáætlun Menntastefnu til ársins 2030.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum