Hoppa yfir valmynd

Frétt

30. september 2021 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Úttekt á gæðum náms við Háskóla Íslands

Háskóli Íslands, aðalbygging - mynd
Gæðaráð íslenskra háskóla hefur nú birt niðurstöður úttektar á gæðum náms við Háskóla Íslands. Úttektin er liður í skipulegu eftirliti ráðsins með gæðum íslenskra háskóla með áherslu á nemendur, námsumhverfi og prófgráður.

Meðal helstu niðurstaðna úttektarinnar er að helstu styrkleikar Háskóla Íslands séu að skólinn njóti mikils trausts í samfélaginu og samskipti innan stofnunarinnar séu auðveld og boðleiðir til yfirstjórnar stuttar. Innra gæðastarf skólans er metið gott, verkferlar séu skýrir og sambærilegir yfir alla stofnunina. Þá hefur skólinn skýra jafnréttisstefnu og vinnur markvisst að jafnréttismálum þvert á stofnunina. Félög stúdenta hafi greiðan aðgang að rektor skólans og nemendur kunni vel að meta þá náms- og starfsráðgjöf sem í boði er hjá skólanum.

Í úttekt gæðaráðsins eru gerðar athugasemdir við ýmsa þætti sem skólinn þarf að vinna að umbótum á. Má þar nefna að sjálfstæði sviða innan skólans leiðir til misræmis gagnvart nemendum og starfsfólki. Skólinn þurfi að þróa sameiginleg viðmið og stefnur þvert á skólann til að samræma umgjörð fyrir doktorsnema, notkun hæfniviðmiða og viðbrögð við kennslukönnunum, mikilvægt sé að hagræða kennsluframboði til að minnka kennsluálag og draga úr fjölda stundakennara og stuðla að heildstæðri umræðu um framtíðarsýn skólans.

Háskóli Íslands mun í framhaldinu skila umbótaáætlun til gæðaráðs íslenskra háskóla sem verður fylgt eftir af hálfu ráðsins og í reglulegu samráði skólans við ráðuneytið.

Gæðaráð íslenskra háskóla starfar fyrir mennta- og menningarmálaráðuneyti en markmið eftirlits þeirra er m.a. að bæta kennslu og rannsóknir á vettvangi íslenskra háskóla, tryggja að skilyrði fyrir viðurkenningu ráðherra á fræðasviðum háskóla séu uppfyllt og tryggja samkeppnishæfni íslenskra háskóla á alþjóðavettvangi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum