Hoppa yfir valmynd

Frétt

15. október 2021 Heilbrigðisráðuneytið

Embætti forstjóra Landspítala laust til umsóknar

Landspítali - myndHeilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Landspítala.

Landspítali er aðalsjúkrahús landsins og háskólasjúkrahús. Á spítalanum er veitt sérhæfð sjúkrahúsþjónusta, m.a. á göngu- og dagdeildum, fyrir alla landsmenn og almenn sjúkrahúsþjónusta fyrir íbúa heilbrigðisumdæmis höfuðborgarsvæðisins. Nánar er kveðið á um hlutverk hans í lögum nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu. Á Landspítala starfa á sjötta þúsund starfsmenn og er spítalinn einn stærsti vinnustaður landsins.

Helstu verkefni og ábyrgð

Forstjóri ber ábyrgð á að Landspítali starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem heilbrigðisráðherra setur.Forstjóri ber ábyrgð á þeirri þjónustu sem spítalinn veitir, að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við lög um opinber fjármál nr. 123/2015 og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.

Lögum samkvæmt skal forstjóri hafa háskólamenntun og/eða reynslu af rekstri og stjórnun sem nýtist honum í starfi.

Hæfniskröfur

  1. Háskólamenntun á framhaldsstigi sem nýtist í starfi er skilyrði.
  2. Reynsla af rekstri og stjórnun, þ.m.t. mannaforráð, sem nýtist í starfi er skilyrði.
  3. Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði.
  4. Reynsla af stefnumótun og innleiðingu nýunga er skilyrði.
  5. Skýr framtíðarsýn.
  6. Þekking á sviði heilbrigðisþjónustu.
  7. Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu.
  8. Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  9. Mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti er skilyrði.
  10. Góð kunnátta í ensku og kunnátta í a.m.k. einu Norðurlandamáli.

Kostur er að umsækjandi hafi þekkingu á fjármálum hins opinbera.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Um laun forstöðumanns fer eftir 39. gr. a í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.

Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til 5 ára frá 1.mars  2022.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Valdimarsdóttir, ráðuneytisstjóri,  [email protected]

Umsóknir með upplýsingum um núverandi starfsheiti umsækjenda ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun, fyrri störf og afrit af prófskírteinum skulu berast heilbrigðisráðuneytinu, í gegnum ráðningarkerfi ríkisins eða á netfangið: [email protected] eigi síðar en 1. nóvember nk.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 08.11.2021

Nánari upplýsingar veitir

Ásta Valdimarsdóttir - [email protected]

 

(Auglýsingin hefur einnig verið birt á vefnum www.starfatorg.is)

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum