Hoppa yfir valmynd

Frétt

26. október 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Ný skýrsla frá Kjaratölfræðinefnd kynnt á fimmtudag

Fimmtudaginn 28. október 2021, kl. 10.00 -10:40, verður kynnt haustskýrsla Kjaratölfræðinefndar, samstarfsvettvangs um gerð og hagnýtingu tölfræðigagna um laun og efnahag. Í skýrslunni er fjallað um kjarasamningalotuna sem hófst á vormánuðum 2019 og er senn að ljúka, þróun efnahagsmála og launa.

Kynningin verður í formi fjarfundar sem streymt verður í gegnum heimasíðu Kjaratölfræðinefndar. Edda Rós Karlsdóttir, formaður nefndarinnar, kynnir skýrsluna og gerir grein fyrir helstu atriðum hennar og niðurstöðum. 

Meðal nýjunga í skýrslunni eru:

  • Launaþróun ASÍ félaga á almennum markaði er birt sundurliðuð eftir Starfsgreinasambandinu, félögum verslunarmanna, og iðnfélögum.
  • Breytingar á grunntímakaupi allra hópa er birt skipt eftir áhrifum vinnutímatímabreytinga og annarra launabreytinga. 
  • Samsetning starfa er birt á eftir starfshlutfalli og vinnufyrirkomulagi (þ.e. vaktavinnu). 
  • Allir launaþættir eru nú sundurliðaðir eftir konum og körlum.
  • Launastig og launaþróun á Íslandi er sett í alþjóðlegt samhengi. 

Tekið verður við fyrirspurnum á [email protected] meðan á fundinum stendur. Fundarstjórn verður í höndum Aðalsteins Leifssonar ríkissáttasemjara. 

Í nefndinni sitja fulltrúar heildarsamtaka á vinnumarkaði, ríkis og sveitarfélaga, auk fulltrúa forsætisráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og Hagstofu Íslands. Haustskýrslan er þriðja skýrsla nefndarinnar, og stefnt er að því að skýrslunar verði tvær ár hvert – vor og haust.

Skýrslan og tölfræðigögn verða aðgengileg á vef Kjaratölfræðinefndar frá 28. nóvember nk. Það er von nefndarinnar að sá grunnur upplýsinga og tölfræðigagna sem settur er fram í skýrslunni nýtist haghöfum vel við mat á kjaraþróun og við undirbúning komandi kjarasamninga.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum