Hoppa yfir valmynd

Frétt

27. október 2021 Utanríkisráðuneytið, Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Samningur um sjónvarpsútsendingar yfir landamæri undirritaður af Íslands hálfu

Ragnhildur Arnljótsdóttir, fastafulltrúi Íslands hjá Evrópuráðinu í Strassborg, undirritaði Evrópusamning um sjónvarpsútsendingar yfir landamæri fyrir hönd íslenskra stjórnvalda.  - myndMynd: Candice Imbert/Evrópuráðið
Ragnhildur Arnljótsdóttir, fastafulltrúi Íslands hjá Evrópuráðinu í Strassborg, hefur undirritað Evrópusamning um sjónvarpsútsendingar yfir landamæri fyrir hönd íslenskra stjórnvalda.

Markmið samnings Evrópuráðsins um sjónvarpsútsendingar yfir landamæri (ECTT, European Convention on Transfrontier Television) er að auðvelda útsendingar og endurvarp sjónvarpsefnis yfir landamæri samningsríkjanna. Samningurinn er fyrsti sinni tegundar sem gerður var til að koma á sameiginlegum meginreglum um dreifingu sjónvarpsefnis yfir landamæri.

Þýðing samningsins markast nú m.a. af útgöngu Breta úr Evrópusambandinu, en Bretar hafa tilkynnt að þeir muni nýta sér þennan sjónvarpssáttmála Evrópuráðsins og eru þegar aðilar að honum. Noregur, Liechtenstein og Sviss eru jafnframt þegar aðilar að samningnum og talið er mikilvægt að Ísland verði það einnig. Er það m.a. mat Fjölmiðlanefndar að undirritun og fullgilding samningsins muni auðvelda öll samskipti á þessu sviði við bresk yfirvöld eftir útgöngu Breta úr Evrópusambandinu.

Ísland mun taka við formennsku í Evrópuráðinu í nóvember árið 2022, í annað sinn frá upphafi en 47 Evrópuríki eiga aðild að ráðinu. Undirbúningur fyrir formennskuna gengur vel og reikna má með viðburðum bæði hér á landi og erlendis á formennskutímabilinu og í aðdraganda þess.

Hægt er að kynna sér samninginn hér og breytingar við hann hér.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum