Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. nóvember 2021 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu bárust 187 gild tilboð um kaup og sölu á tilboðsmarkaði fyrir greiðslumark mjólkur þann 1. nóvember 2021. Þetta er síðasti markaður ársins og viðskiptin taka gildi frá 1. janúar 2022.

Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum AFURÐ sem er greiðslukerfi landbúnaðarins og liggur niðurstaða markaðarins nú fyrir.

Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 305 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverð sem er jafnt hámarksverði, þ.e. 305 kr./ltr.

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 13.
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 174.
  • Eitt kauptilboð var undir jafnvægisverði/hámarksverði.
  • Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 1.135.858 lítrar
  • Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru 8.565.000 lítrar
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 1.135.725 lítrar að andvirði 346.396.125,- kr.
  • Sérstök úthlutun til nýliða er 5% af sölutilboðum eða 56.784 lítrar. Fjöldi gildra kauptilboða frá nýliðum voru 16.

Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt gildum tilboðum. 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í AFURÐ.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum