Hoppa yfir valmynd

Frétt

11. nóvember 2021 Matvælaráðuneytið

Styrkir til rannsókna- og þróunarverkefna í sauðfjárrækt

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til þróunarverkefna í sauðfjárrækt, samkvæmt VIII. kafla reglugerðar nr. 430/2021 um almennan stuðning í landbúnaði.

Fjármunum til þróunarverkefna er ætlað að styðja við kennslu, rannsóknir, leiðbeiningar og þróun í sauðfjárrækt svo sem rannsókna- eða þróunarverkefni. Fagráð í sauðfjárrækt veitir umsögn um allar umsóknir sem berast.

Umsókn skal skila rafrænt á mínum síðum (eyðublaðavef) Stjórnarráðsins

Umsóknarfrestur er til og með 10. desember 2021.

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk skrifstofu landbúnaðarmála í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Senda má fyrirspurnir á netfangið: [email protected]

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum