Hoppa yfir valmynd

Frétt

22. nóvember 2021 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum og unnum kjötvörum frá Bretlandi

Með vísan til sérstaks samnings milli Íslands, Bretlands og Noregs um viðskipti með landbúnaðarvörur, á grundvelli 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993 og 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum og unnum kjötvörum frá Bretlandi nr. 1297/2021, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á landbúnaðarvörum, upprunnum í Bretlandi og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. janúar – 31. desember 2022:

 

 

 

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Úr tollskrárnr.

 

 

kg

%

kr./kg

ex0406

Ostur og ystingur (**)

01.01. - 31.12.22

11.000

0

0

 

0406

Ostur og ystingur

01.01. - 31.12.22

19.000

0

0

1602

Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum

01.01. - 31.12.22

18.000

0

0

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

(**) PDO eða PGI. Skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla

 

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Berist umsóknir um meira magn innflutnings vara úr vörulið ex 0406(**) en auglýstum tollkvóta nemur skal tollkvótanum úthlutað eftir hlutkesti. Úthlutun er ekki framseljanleg.

 

Umsóknar- og tilboðsferli vegna úthlutunar tollkvótans fer fram með rafrænum hætti á vefkerfinu tollkvoti.is. Nýskráning notenda í vefkerfið fer fram hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Ef óskað er eftir nýskráningu notenda skal hafa samband við ráðuneytið í síma 545-9700 eða á [email protected]. Sjá eftirfarandi ítarefni vegna úthlutunar tollkvóta:

Leiðbeiningar, tollkvóti.is

Vefkerfi fyrir úthlutun tollkvóta landbúnðarvara

 

Opnað verður fyrir umsóknir á tollkvoti.is; mánudaginn 22. nóvember 2021 og skulu umsóknir berast fyrir kl. 23.59, mánudaginn 29. nóvember 2021.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. nóvember 2021.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum