Hoppa yfir valmynd

Frétt

13. desember 2021 Forsætisráðuneytið

Aðgerðahópur um launajafnrétti og jafnrétti á vinnumarkaði tekur til starfa

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur skipað Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, skrifstofustjóra skrifstofu jafnréttismála í forsætisráðuneytinu, sem formann aðgerðahóps stjórn­valda og aðila vinnu­markaðar­ins um launa­jafn­rétti og jafn­rétti á vinnu­markaði.

Hóp­ur­inn var skipaður í september í kjölfar skýrslu sem starfs­hóp­ur um end­ur­mat kvennastarfa skilaði af sér. Verk­efni hins nýja aðgerðahóps er að leggja fram til­lög­ur að aðgerðum til að út­rýma launamun sem skýrist af kyn­skipt­um vinnu­markaði og kerfisbundnu vanmati á hefðbundnum kvennastörfum.

Í hópnum eiga einnig sæti full­trú­ar frá fé­lags­málaráðuneyti, fjár­mála- og efnahagsráðuneyti, ASÍ, BSRB, BHM, Kenn­ara­sam­bandi Íslands, Sam­tök­um at­vinnu­lífs­ins og Sam­bandi ís­lenskra sveit­ar­fé­laga. Bára Hildur Jóhannsdóttir sérfræðingur hefur verið ráðin sem starfsmaður hópsins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum