Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. desember 2021 Matvælaráðuneytið

Niðurstaða úthlutunar á tollkvótum á landbúnaðarafurðum frá Bretlandi fyrir tímabilið janúar til desember 2022

Niðurstaða úthlutunar á tollkvótum á landbúnaðarafurðum frá Bretlandi fyrir tímabilið

janúar til desember 2022

 

Föstudaginn 10. desember 2021, rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og unnum kjötvörum frá Bretlandi samkvæmt reglugerð nr. 1297/2021 fyrir tímabilið 1. janúar til 31. desember 2021.

 

Ostar og ystingur í vörulið 0406. Sjö tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi á vörulið 0406, samtals 87.000 kg. á meðalverðinu 210 kr./kg. Hæsta boð var 667 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 19.000 kg. á meðalverðinu 585 kr./kg.

 

Ostur og ystingur úr vörulið ex0406;...(**). Fimm umsóknir bárust um tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi úr vörulið ex 0406...(**) samtals 38.650 kg. Á grundvelli 5. gr. reglugerðar nr. 1297/2021 er tollkvóta úr vörulið ex0406 úthlutað með hlutkesti og er hámark úthlutunar til hvers fyrirtækis 15% af heildarmagni tollkvótans. Samtals var úthlutað 11.000 kg., til fimm fyrirtækja.

(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.

 

Annað kjöt...., unnið eða varið skemmdum-... í vörulið 1602. Sex tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á öðru kjöti..., á vörulið 1602, samtals 82.000 kg. á meðalverðinu 148 kr./kg.  Hæsta boð var 629 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 18.000 kg. á meðalverðinu 599 kr./kg.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:

 

Ostur og ystingur 0406

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

14.750

KFC ehf

4.250

Natan & Olsen ehf

 

Ostur og ystingur ex 0406 (**)

Úthlutað magn (kg)

Tilboðsgjafi

1.650

Danól ehf

1.650

Innnes ehf

3.300

Krónan ehf

1.650

Natan & Olsen ehf

2.750

Mjólkursamsalan

 

Annað kjöt, hlutar úr dýrum-.... 1602 

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

18.000

KFC ehf

 

Reykjavík, 16. desember 2021

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið Sþ: 15 Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum