Hoppa yfir valmynd

Frétt

28. apríl 2022 Innviðaráðuneytið

Morgunfundur: Straumhvörf með breyttu regluverki um steypu

Innviðaráðuneytið og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun standa að morgunfundi á Nauthóli, 2. maí kl. 11-12, þar sem kynnt verða straumhvörf í byggingariðnaði með fyrirhuguðum breytingum á kafla um steypu í byggingarreglugerð.

Kynntar verða tillögur að breytingum á steypukafla byggingarreglugerðar, sem sérstakur faghópur hefur unnið í samstarfi við HMS og fjölda hagaðila innan byggingariðnaðarins.

Helstu breytingar felast í sveigjanlegri og markmiðsbundnum ákvæðum sem munu opna fyrir grænar lausnir og minni losun gróðurhúsalofttegunda, en með óbreyttri áherslu á öryggi og gæði. Þannig skapa breytingarnar m.a. hvata til að nota fjölbreyttari samsetningar í steypuíblöndun, nýta mismunandi blöndur fyrir ólíkar aðstæður og endurvinna steinefni. Einnig koma breytingarnar til móts við hækkandi heimsmarkaðsverð á sementi og stuðla því að lægra byggingarverði.

Dagskrá:

  • Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra - Ávarp
  • Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, teymisstjóri nýsköpunar hjá HMS - Mikilvæg skref í átt að vistvænni mannvirkjagerð
  • Guðbjartur Jón Einarsson, deildarstjóri viðhalds- og aðstöðuþjónustu hjá Framkvæmdasýslu Ríkiseignum - Tillögur faghóps um breytingar á steypukaflanum

Pallborð:

  • Arnhildur Pálmadóttir, arkitekt hjá s. ap arkitektum
  • Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri Jáverks
  • Sigríður Ósk Bjarnadóttir, dósent við umhverfis- og byggingarverkfræðideild HÍ
  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
  • Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins

Fundarstjóri er Herdís Hallmarsdóttir, lögfræðingur hjá HMS.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum