Hoppa yfir valmynd

Frétt

6. maí 2022

Reglugerð til innleiðingar fimmta pakka þvingunaraðgerða vegna stríðsins í Úkraínu birt

Reglugerð nr. 532/2022 um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu, nr. 281/2014, ásamt síðari breytingum hefur verið birt í stjórnartíðindum. Með reglugerðinni er fimmti pakki þvingunaraðgerða Evrópusambandsins vegna stríðsins í Úkraínu innleiddur.

Yfirlit yfir þvingunaraðgerðir vegna stríðsins í Úkraínu má finna á landalista utanríkisráðuneytisins um þvingunaraðgerðir undir bæði Rússlandi og Úkraínu. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum