Hoppa yfir valmynd

Frétt

18. maí 2022 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss - myndiStock/Oleksii Liskonih

Með vísan til 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar nr. 561/2022 er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir innflutning á kjöti úr dýrum af nautgripakyni og osti og ystingi, fyrir tímabilið 1. júlí 2022 til 30. júní 2023:

Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur

Tollskrárnr:

kg

%

kr./kg.

ex0210.xxxx

Nautgripakjöt - Vöruliður 0210:

01.07.22-30.06.23

10.000

0

0

Kjöt af dýrum af nautgripakyni:

0210.2001

-- Beinlaust

0

0

0210.2009

-- Annars

0

0

0406.xxxx

Ostur og ystingur:

01.07.22-30.06.23

15.000

0

0

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg.

Umsóknar- og tilboðsferli vegna úthlutunar tollkvótans fer fram með rafrænum hætti á vefkerfinu tollkvoti.is. Nýskráning notenda í vefkerfið fer fram hjá matvælaráðuneytinu. Ef óskað er eftir nýskráningu notenda skal hafa samband við ráðuneytið í síma 545-9700 eða á [email protected]. Sjá eftirfarandi ítarefni vegna úthlutunar tollkvóta:

Opnað verður fyrir umsóknir á tollkvoti.is; þriðjudaginn 17. maí 2022 og skulu umsóknir berast fyrir kl. 23.59, þriðjudaginn 24. maí 2022.

 

Matvælaráðuneytinu,

17. maí 2022.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum