Hoppa yfir valmynd

Frétt

30. júní 2022 Innviðaráðuneytið

Rampur nr. 50 settur upp í Hafnarfirði

Vilhjálmur Hauksson, 13 ára nemandi í Setbergsskóla, klippti á borða og opnaði formlega ramp nr. 50 í verkefninu með Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarstjóra Hafnarfjarðar, sér við hlið. - myndMynd/Sigurjón Ragnar

Rampur nr. 50 í verkefninu Römpum upp Ísland var settur upp við Ísbúð Vesturbæjar við Fjarðargötu í Hafnarfirði í dag. Vilhjálmur Hauksson, 13 ára Hafnfirðingur og fulltrúi ungu kynslóðarinnar vígði rampinn formlega. Ísbúð er frábært dæmi um fjölsóttan og vinsælan viðkomustað barna og ungmenna og fjölskyldunnar allrar. Breyting á hæð og halla við inngang í ísbúð var ekki umfangsmikil en áhrif á aðgengi mikil. Römpum upp Ísland hefur það að markmiði að koma upp þúsund nýjum römpum um allt Ísland á næstu fjórum árum.

„Við höfum beðið spennt eftir komu verkefnisins til Hafnarfjarðar og starfsfólk bæjarins lagt sig fram við að greiða götu þess. Þetta framtak er til fyrirmyndar og framkvæmdin bæði vitundarvakning og hvetjandi fyrir ríki, sveitarfélög og fyrirtæki. Þetta snýst allt um að hver og einn yfirfari sín aðgengismál og tryggi gott aðgengi. Við hjá Hafnarfjarðarbær erum markvisst að fara yfir aðgengi að öllum okkar stofnunum því við viljum sannarlega að allir, óháð líkamlegri getu og hreyfifærni, geti sótt sér þá þjónustu sem viðkomandi óskar sér,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Auk Rósu voru Haraldur Þorleifsson, stjórnandi hjá Twitter og hvatamaður verkefnsins, og Ágúst Bjarni Garðarsson, stjórnarmaður í Römpum upp Ísland viðstaddir auk fjölda gesta.

Villi opnar ramp nr. 50

Vilhjálmur Hauksson, 13 ára nemandi í Setbergsskóla í Hafnarfirði, vígði rampinn. Villi notar hjólastól og hefur þrátt fyrir ungan aldur látið vel til sín taka í tillögum og umræðu um mannréttindi, skólamál, umhverfismál og aðgengismál. Bæði einn og sjálfur og sem fulltrúi úr ráðgjafahópi umboðsmanns barna. Villi er öflugur fulltrúi ungu kynslóðarinnar og hefur þessi litla breyting sem gerð var á aðkomu og inngangi ísbúðar mikil áhrif á aðgengi Villa og annarra þeirra sem búa við hverskyns hreyfihömlun.

Áhersla á staði þar sem mannlíf er mikið

Búið er í fyrsta fasa að marka 30 staði í miðbæ Hafnarfjarðar og til stendur að leggja í það minnsta 80 rampa í Hafnarfirði á næstu misserum. Ákveðið var að leggja áherslu á minni og stærri framkvæmdir við inngang þjónustuaðila, kaffihúsa, verslana og veitingastaða í hjarta Hafnarfjarðar til að byrja með og rampa upp þá staði þar sem mannlífið er mikið og áhrifin þar með mest. Römpum upp Ísland verkefnið hefur þann mikilvæga tilgang að greiða aðgengi hreyfihamlaðra og stuðlar verkefnið að auknu jafnrétti allra og frelsi til almennrar þátttöku í samfélaginu.

Rampar hafa verið settir upp víða að síðustu vikur eða allt frá því sá fyrsti í þessu átaki var opnaður í Hveragerði í maí. Þrítugasti rampurinn var settur upp í Reykjanesbæ fyrr í mánuðinum og sá fertugast á Hvanneyri í síðustu viku.

Stofnaður var sjóður með aðkomu fjölmargra fyrirtækja, einstaklinga og opinberra aðila sem munu standa straum af kostnaði fyrir þá verslunar- og veitingahúsaeigendur sem taka þátt í verkefninu. Með römpunum er öllum gert kleift að sækja veitingastaði og verslanir þátttakenda á landinu öllu. 

  • Stór hópur á beina eða óbeina þátttöku að innleiðingu á verkefninu í Hafnarfirði. Hér má sjá bæjarstjóra og starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar með aðstandendum, stjórnarmönnum og hvatafólki Römpum upp Ísland. - mynd
  • Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, ávarpar gesti við opnunina. Með henni eru Haraldur Þorleifsson, hvatamaður verkefnisins, Vilhjálmur Hauksson, sem vígði rampinn, og Ágúst Bjarni Garðarsson. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum