Útgefið efni
Útgefið efni á vegum þjóðaröryggisráðs
- Skýrsla vinnuhóps þjóðaröryggisráðs um upplýsingaóreiðu og COVID-19 (okt. 2020)
- Report of the National Security Council’s Working Group on Information Disorder and COVID-19 (October 2020)
Samtal um þjóðaröryggi: Fjölþáttaógnir
Þann 27. febrúar n.k. stóð þjóðaröryggisráð fyrir ráðstefnu um fjölþáttaógnir (e. hybrid threats) í Hátíðasal Háskóla Íslands frá kl. 13:00-17:00. Fjölmargir erlendir og innlendir sérfræðingar tóku þátt. Fjallað var um fjölþáttaógnir í víðum skilningi. Hvað felst í hugtakinu, hvernig getum við aukið varnir gegn fjölþáttaógnum, verndað lýðræðisleg grunngildi og styrkt áfallaþol samfélagsins gagnvart fjölþáttaógnum? Ráðstefnan fór fram á ensku. Þjóðaröryggisráð gekkst fyrir ráðstefnunni í samstarfi við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, Verkfræðingafélag Íslands, Blaðamannafélag Íslands, Fjölmiðlanefnd, Kvikmyndamiðstöð, Varðberg, Utanríkisráðuneytið, Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Persónuvernd, Póst og fjarskiptastofnun, Ríkislögreglustjóra og Nefnd um samningu heildarlaga um starfsemi stjórnmálaflokka.
Samantekt frá ráðstefnu þjóðaröryggisráðs um fjölþáttaógnir:
- Samantekt frá ráðstefnu þjóðaröryggisráðs um fjölþáttaógnir
- Summary report – National Security Conference on hybrid threats
Streymi frá ráðstefnunni:
- Opening remarks
- Session one: Hybrid Challenges Conventional and Unconventional Responses
- Session two: Hybrid Challenges Safeguarding Democratic Values
- Session three: The Importance of Fostering Resilience
Opinn fundur 16. September 2019: ,,Samtal um þjóðaröryggi: Lýðræði og fjölþáttaógnir“
Á fundinum var fjallað m.a. falsfréttir, fjölmiðlalæsi, opna lýðræðislega umræðu og samfélagsleg gildi.
Opinn fundur 25. september 2019: Samtal um þjóðaröryggi: Tækni og grunngildi
Á fundinum var fjallað um tækniþróun og áhrif hennar á grunngildi þess samfélags sem við búum í. Rætt var um hvaða möguleika tæknin býður uppá til að hafa áhrif, hverjir nýta sér tæknina, í hvaða tilgangi og með hvaða árangri og loks hvernig er hægt að bregðast við.
Málþing: „Samtal um fullveldi og þjóðaröryggi“ (23. nóvember 2018)
- Samantekt frá málþinginu „Samtal um fullveldi og þjóðaröryggi“
- Streymi af málþingi - Samtal um fullveldi og þjóðaröryggi
Þjóðaröryggi
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.