Hoppa yfir valmynd

Jarða- og ábúðarmál

Um málefni jarða og ábúðar er fjallað í ákvæðum jarðalaga og ábúðarlögum.

Ábúð

Ábúð merkir afnotarétt af jörð eða jarðhluta til búrekstrar eða annars atvinnurekstrar á sviði landbúnaðar með þeim réttindum og skyldum sem mælt er fyrir um í ákvæðum ábúðarlaga.

Jarðir

Um jarðir gilda ákvæði jarðalaga nr. 81/2004. Lögin gilda um allt land sem ekki er undanskilið í 2 mgr. 3. gr. en það eru jarðir, annað land, fasteignir og fasteignaréttindi í þéttbýli sem skipulagt hefur verið fyrir aðra starfsemi en landbúnað með skipulagi staðfestu og/eða samþykktu af skipulagsyfirvöldum í samræmi við ákvæði skipulagslaga.

Jarðalögin taka því til:

  • jarða
  • jarðahluta
  • afréttarlanda
  • almenninga
  • öræfa
  • þjóðlendna
  • eyðijarða
  • landspildna
  • lóða
  • mannvirkja
  • skóga
  • vatnsréttinda
  • veiðiréttinda
  • námuréttinda
  • jarðhitaréttinda og annarra náttúruauðlinda
  • annarra fasteigna
  • fasteignaréttinda
  • ítaka og hlunninda á landi og innan netlaga, hvort sem þau hafa verið skilin frá jörð eða ekki

Sjá einnig:

Síðast uppfært: 7.12.2022
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum