Hoppa yfir valmynd
19. desember 2018 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Fimmti fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2018

Fjármálastöðugleikaráð hélt sinn fimmta fund á árinu 2018 miðvikudaginn 19. desember.

Áhætta í fjármálakerfinu er enn tiltölulega hófleg og hefur lítið breyst frá síðasta fundi fjármálastöðugleikaráðs. Áfram slaknar á spennu í þjóðarbúskapnum. Nú ríkir nokkur óvissa um framvinduna í ferðaþjónustu og áhrif kjarasamninga á efnahagslífið. Áfram er upptaktur í fjármálasveiflunni og skuldir vaxa nú hraðar en landsframleiðsla. Fasteignaverð hefur haldið áfram að hækka þótt dregið hafi nokkuð úr hækkun verðs á íbúðarhúsnæði. Innlendir flugrekendur hafa verið í mótvindi, en bein áhrif af mögulegu áfalli á fjármálakerfið eru talin takmörkuð.

Viðnámsþróttur viðskiptabankanna er talsverður. Eiginfjárhlutföll þeirra eru nokkuð yfir kröfum Fjármálaeftirlitsins og lausafjárstaða þeirra er vel yfir lágmarki samkvæmt reglum Seðlabankans. Þá er geta þjóðarbúsins til að takast á við áföll góð, m.a. vegna góðrar ytri stöðu, stórs gjaldeyrisforða og lágrar skuldastöðu hins opinbera og einkageirans. Svigrúm hagstjórnar til að mæta áföllum er einnig talsvert þar sem afgangur er á ríkissjóði, skuldir hins opinbera eru lágar í sögulegu samhengi og nafnvextir Seðlabankans töluvert frá núlli.

Á fundinum var fjallað um hraða þróun fjártækni sem kallar á aukinn viðbúnað varðandi net- og upplýsingaöryggi. Einnig var rætt hvernig treysta megi sem best innlenda greiðslumiðlun í ljósi þeirrar þróunar sem væntanleg er.

Samþykkt var að beina tilmælum til Fjármálaeftirlitsins um að hækka sveiflujöfnunarauka um 0,25 prósentur, úr 1,75% í 2%. Hækkunin tekur gildi 12 mánuðum eftir ákvörðun Fjármálaeftirlitsins, fylgi stofnunin tilmælunum.

Fundardagar fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2019 verða 1. apríl, 21. júní, 24. september og 17. desember.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum