Hoppa yfir valmynd
16.07.2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Lög um breytingu á lögum um aðbúnað og hollustuhætti á vinnustöðum  nr.46/1980 og lögum málefni fatlaðs fólks, nr. 59/1992

Hinn 30. júní sl. voru samþykkt á Alþingi breyting á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum,  og málefni fatlaðs fólks.

Í 3. gr. bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

 Með samkomulagi samtaka aðila vinnumarkaðarins er heimilt að víkja frá ákvæðum 53. og 56. gr. um hvíldartíma og næturvinnutíma þeirra starfsmanna sem veita einstaklingum þjónustu á grundvelli samstarfsverkefnis ríkis, sveitarfélaga og heildarsamtaka fatlaðs fólks um notendastýrða persónulega aðstoð samkvæmt ákvæði til bráðabirgða IV í lögum nr. 59/1992, um málefni fatlaðs fólks, með síðari breytingum. Sé með slíku samkomulagi vikið frá ákvæði 53. gr. þannig að hvíldartíminn verði styttri hjá viðkomandi starfsmönnum en ákvæðið gerir ráð fyrir skal við það miðað að starfsmennirnir fái eins fljótt og við verður komið samsvarandi hvíldartíma að lágmarki og kveðið er á um í fyrrnefndu ákvæði. Vinnueftirlit ríkisins skal veita umsögn um slíkt samkomulag samtaka aðila vinnumarkaðarins.
    Ákvæði þetta gildir til sama tíma og ákvæði til bráðabirgða IV í lögum nr. 59/1992, um málefni fatlaðs fólks, með síðari breytingum, eða til ársloka 2016.

Í 4. gr.  í  stað ártalsins „2014“ í 1. og 2. málsl. 5. mgr. ákvæðis til bráðabirgða IV í lögunum kemur: 2016.

Með fyrgreindum breytingum gefst aðilum vinnumarkaðarins svigrúm til þess að prófa mismunandi útfærslur á vinnutilhögun í NPA. Vakin er þó athygli á því að Vinnueftirlit ríkisins skal veita umsögn um slíkt samkomulag.

Með framlengingu tilraunaverkefnisins um NPA er verið að tryggja að sú reynsla sem verður af framkvæmd verkefnisins nýtist til fullnustu við mótun NPA til framtíðar. 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum